Fara í efni
Blak

Karen Hulda gerir samning við Þór/KA

Karen Hulda Hrafnsdóttir í leik með Þór/KA fyrr í sumar. Mynd: Ármann Hinrik

Stjórn Þórs/KA hefur gert samning við Karen Huldu Hrafnsdóttur, unga og efnilega knattspyrnukonu sem hefur fengið tækifæri með meistaraflokki félagsins á yfirstandandi tímabili og vakið athygli fyrir góða frammistöðu í vörn liðsins. Þetta er fyrsti samningur Karenar Huldu við félagið.

Karen Hulda er fædd 2009, en á nú þegar að baki tíu leiki með Þór/KA í Bestu deildinni, marga þeirra í byrjunarliðinu, og 15 leiki alls með meistaraflokki að meðtöldum leikjum í Mjólkurbikar og Lengjubikar. Samtals á hún að baki 28 leiki í meistaraflokki því hún lék með Dalvík/Reyni í 2. deild í fyrra, spilaði þá tíu leiki í 2. deild, einn í Mjólkurbikar og tvo í Lengjubikar og skoraði tvö mörk.

„Karen Hulda hefur eins og áður sagði fengið tækifæri með meistaraflokki liðsins í sumar og vaxið með hverjum leik. Hún hefur tekist á við nýtt hlutverk, en eftir að hafa leikið sem miðjumaður upp yngri flokkana hefur hún færst í stöðu miðvarðar með meistaraflokki. Hún hefur leikið í þeirri stöðu í sumar og má fullyrða að hin reynda Arna Sif Ásgrímsdóttir kenni henni eitt og annað nytsamlegt í hverjum leik enda um 17 ára aldursmunur á þeim. Karen Hulda er stór og sterk og á sannarlega framtíðina fyrir sér í boltanum,“ segir í tilkynningu frá Þór/KA.