Fara í efni
Blak

Það er mikilvægt að fara ekki á taugum

Hallgrímur Jónasson þjálfari KA á hliðarlínunni í kvöld. Mynd: Skapti Hallgrímsson

„Það eru blendnar tilfinningar eftir þennan leik,“ sagði Hallgrímur Jónasson þjálfari KA við akureyri.net eftir markalausa jafnteflið gegn Þór í Bestu deild karla í fótbolta á nýja KA-vellinum í kvöld.

„Þetta var frábær viðburður, fullt af fólki í KA er búið að leggja mikið á sig undanfarna daga til að þessi leikur gæti farið fram á þessum velli. Aðstæðurnar voru nánast upp á tíu og stemningin frábær. Ég er ánægður með það.

En ég er óánægður með að við skyldum ekki ná að skora því mér fannst við spila frábærlega í fyrri hálfleiknum. Aron varði vel einu sinni, Jakob Snær skaut í slá, og við vorum bara rosalega flottir og mér fannst við yfirspila þá í fyrri hálfleik. En við náðum ekki að skora og svo jafnaðist þetta í seinni hálfleik. Við vorum aðeins meira með boltann en sköpuðum ekki nóg.

Við hefðum getað gert út um þetta á 94. mínútu þegar Valdimar lék inn í teiginn hjá þeim, þóttist skjóta og fór skrefi lengra. Þá var allt galopið en því miður fór boltinn ekki inn. Við hefðum því getað tekið þetta í lokin en ég er ánægður með mikinn hluta af spilamennskunni, og sérstaklega hvað við sköpuðum mikið. En því miður vildi boltinn ekki inn.“

En það vantaði samt að þið kæmust í fleiri hrein dauðafæri?

„Já, ég er sammála því, og við vorum oft komnir í þær stöður að næsti maður var í galopnu færi. Jakob Hreinn komst í gegn strax á fyrstu mínútu en reyndi að gefa boltann í stað þess að skjóta - þetta var mikið þannig. En svo var þetta líka hrein óheppni eins og þegar Jakob Snær skaut í slána. Markmaðurinn var sigraður en það var ekki nóg.“

Þú er ekki sáttur við eitt stig en baráttan í deildinni verður alltaf tvísýnni með svona úrslitum.

„Já, deildin er svo jöfn. Við erum komnir með fjögur stig gegn Þór og erum að kroppa stigin af liðunum sem eru í kringum okkur. Okkur hefur gengið erfiðlega gegn bestu liðunum og þar þurfum við að gera betur. Nú kemur verslunarmannahelgin og svo mætum við Keflavík sem fyrir mér er eitt af spútnikliðum sumarsins og hefur komið öllum á óvart með flottri spilamennsku.

Svo fáum við FH heima og það er lið sem er á siglingu. Deildin er gríðarlega jöfn, og nú erum við einmitt að spila við liðin í kringum okkur. Við unnum ÍA, gerðum jafntefli við ÍBV og svo kom þetta svekkjandi jafntefli í kvöld.

Eins og ég hef sagt við strákana þá verður frammistaðan stöðugt betri og stigin tikka inn smám saman. Við verðum að halda haus og vinna í að bæta okkur, og það mun koma okkur úr þessari stöðu. Það er mikilvægt að fara ekki á taugum þegar staðan er erfið og við munum vinna okkur út úr þessu eins og við höfum gert áður.“

Fáið þið meiri liðsauka á næstunni?

„Það er ekkert ákveðið, við þurfum aðeins að sjá til með þá sem eru að koma til baka eftir meiðsli. Ef það gengur illa þá munum við skoða málin en það er ekkert að frétta af slíku,“ sagði Hallgrímur Jónasson.