Fara í efni
Blak

KA-menn í Eyjum í dag – Dikhaminjia úr leik

Giorgi Dikhaminjia í skotstöðu í síðasta deildarleik vetarins, gegn Þór í Höllinni á dögunum. Hann er meiddur og missir af leikjum KA í úrslitakeppninni. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Úrslitakeppnin í Olísdeild karla í handbolta hefst í dag með tveimur leikjum, annars vegar mætast ÍBV og KA í Vestmanneyjum, hins vegar Valur og HK að Hlíðarenda.

Lykilmenn KA hafa verið frá vegna meiðsla undanfarið, stórskyttan Bjarni Ófeigur Valdimarsson vegna meiðsla á fingri, Norðmaðurinn Morten Linder fór úr axlarlið og fyrirliðinn og varnarjaxlinn Daði Jónsson sleit hásin á æfingu daginn fyrir leikinn við Þór í lokaumferð deildarkeppninnar. Nú er enn einn úr leik; örvhenti hornamaðurinn, Giorgi Dikhaminjia.

Giorgi, næst markahæstur leikmaður KA í vetur á eftir Bjarna Ófeigi, meiddist í landsleik með Georgíu í síðustu viku gegn Ísrael í undankeppni heimsmeistaramótsins. Þetta kom fram á handboltavefnum Handkastinu, þar sem haft er eftir Andra Snæ Stefánssyni þjálfara KA að það væri nokkuð ljóst að tímabilinu væri lokið hjá Georgíumanninum.

ÍBV endaði í 4. sæti deildarinngar og KA í því fimmta. Það er því ÍBV sem á oddaleiksréttinn í þessari viðureign, vinna þarf tvo leiki til að fara áfram í undanúrslit Íslandsmótsins og liðin mætast aftur á sunnudaginn í KA-heimilinu.
  • Olísdeild karla í handbolta
    Átta liða úrslit, leikur 1
    Íþróttamiðstöðin í Vestmannaeyjum kl. 18
    ÍBV - KA
  • Útsending: Handboltapassinn í Sjónvarpi Símans
    Áskriftarsjónvarp

Leikir þessara liða í deildinni í vetur enduðu með eins og tveggja marka sigri. ÍBV vann 36-34 í Eyjum í október og KA vann 29-28 á Akureyri í febrúar.

Tveir seinni leikirnir í fyrstu umferð úrslitakeppninnar eru á dagskrá á morgun: Haukar - Afturelding og FH - Fram.

Bjarni Ófeigur bestur og Giorgi í úrvalsliðinu

Bjarni Ófeigur Valdimarsson var besti leikmaður Olísdeildarinnar í vetur að mati sérfræðinga Handboltahallarinnar, handboltaþáttarins í sjónvarpi Símans. Þetta var tilkynnt í uppgjörsþætti hallarinnar. Bjarni er vitaskuld í úrvalsliði deildarinnar og Giorgi Dikhaminjia, örvhenti hornamaðurinn sem nefndur var að ofan, er einnig í úrvalsliðinu.
 
Úrvalslið sérfræðinganna er þannig skipað:
 
  • Markvörður: Björgvin Páll Gústavsson, Val
  • Vinstri hornamaður: Giorgi Dikhaminjia, KA
  • Skytta hægra megin: Arnór Snær Óskarsson, Val
  • Leikstjórnandi: Freyr Aronsson, Haukum
  • Skytta vinstra megin: Bjarni Ófeigur Valdimarsson, KA
  • Hægri hornamaður: Hannes Höskuldsson, Selfossi
  • Línumaður: Sigurður Jefferson, HK
  • Þjálfari ársins: Sigursteinn Arndal, FH
  • Besti varnarmaðurinn: Ingvar Dagur Gunnarsson, FH

KA-menn fagna sigri á Vestmannaeyingum á heimavelli í síðasta mánuði. Liðin mætast í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í Eyjum í dag. Mynd: Skapti Hallgrímsson.