Heimaleikir í íshokki, blaki og handbolta
Vikan fram undan verður annasöm hjá íþróttafólki og íþróttaáhugafólki. Karlahandboltinn verður keyrður í gang af krafti eftir EM-hléið og stelpurnar í KA/Þór berjast um sæti í úrslitahelgi bikarkeppninnar. Lengjubikarinn í knattspyrnu er hafinn og öll þrjú Akureyrarliðin á faraldsfæti um komandi helgi. Blakleikir og íshokkí einnig á dagskránni, en frí í körfuboltanum þar sem fram undan er bikarhelgi KKÍ.
Á dagskrá vikunnar eru heimaleikir í íshokki, blaki og handbolta, en mörg Akureyrarlið verða líka á faraldsfæti, útileikir í handbolta, fótbolta og íshokkí á næstu dögum. Dagskráin fram undan gæti tekið breytingum því eins og leikjadagskrár eru núna á vefjum HSÍ og BLÍ stangast á leikir í handbolta og blaki í KA-heimilinu á laugardag. Væntanlega verða þar einhverjar breytingar á leiktímum.
ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR - handbolti, íshokkí
KA/Þór náði að breikka bilið niður í fallbaráttuna í Olísdeildinni með sigri á Stjörnunni í 15. umferðinni, en staðan í deildinni segir ekki alla söguna þegar kemur að bikarleikjum. Næsta verkefni handboltakvennanna er í átta liða úrslitum bikarkeppninnar, útileikur gegn Gróttu sem er í toppbaráttu næstefstu deildar, Grill 66 deildarinnar.
- Powerade-bikar kvenna í handknattleik, átta liða úrslit
Hertz-höllin á Seltjarnarnesi kl. 19:30
Grótta - KA/Þór
- - -
Nú þegar er ráðið að SA og SR mætast í úrslitaeinvígi karla um Íslandsmeistaratitilinn í íshokkí þó enn sé átta leikjum ólokið í A-hluta deildarinnar. Baráttan fram að úrslitaeinvíginu stendur um það hvort liðið verður deildarmeistari og tryggir sér oddaleiksréttinn í einvíginu. SR stendur betur að vígi eftir góða ferð norður á Ofurhelginni í byrjun janúar, er með 23 stig úr 11 leikjum, en SA hefur 19 stig úr tíu leikjum.
Á þriðjudag er komið að heimaleik hjá SA Víkingum þegar þeir taka á móti Fjölni.
- Toppdeild karla í íshokkí
Skautahöllin á Akureyri kl. 19:30
SA - Fjölnir
MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR - handbolti, blak
Eftir langt hlé vegna þátttöku karlalandsliðsins á EM er komið að leikjum í Olísdeild karla í handknattleik. Bæði Akureyrarliðin leika tvisvar í komandi viku. KA hefur leik á miðvikudag, sækir þá ÍR heim í Breiðholtið. ÍR-ingar eru í botnsæti deildarinnar með fimm stig, en KA í 5. sæti með 18 stig.
- Olísdeild karla í handknattleik, 16. umferð
Skógarsel í Breiðholti 18:30
ÍR - KA
- - -
Karlalið KA í blaki átti erfiða helgi í Hveragerði, féll út úr bikarnum á laugardag og tapaði deildarleik á sunnudag. KA er í 4. sæti deildarinnar með 33 stig úr 15 leikjum, en stutt er í liðin fyrir ofan. KA tekur á móti Völsungi á miðvikudag, en Húsvíkingar eru í 7. sæti deildarinnar með sjö stig.
- Unbroken-deild karla í blaki
KA-heimilið kl. 20
KA - Völsungur
FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR - handbolti
Þórsarar hefja leik að loknu EM-hléinu degi síðar en grannarnir. Á fimmtudag sækja þeir Stjörnuna heim í Garðabæinn. Þórsurum hefur gengið treglega að safna stigum og eru í 11. sæti deildarinnar með sjö stig, en Stjanan í 8. sæti með 10 stig.
- Olísdeild karla í handknattleik, 16. umferð
Hekluhöllin í Garðabæ 18:30
Stjarnan - Þór
LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR - blak, handbolti, fótbolti, íshokkí
Karlalið KA í blaki verður aftur í eldlínunni á laugardag þegar Austfirðingar koma til Akureyrar. Þróttur Fjarðabyggð er í 6. sæti deildarinnar með 13 stig úr 14 leikjum.
- Unbroken-deild karla í blaki
KA-heimilið kl. 13
KA - Þróttur Fjarðabyggð
- - -
Eftir bikarleik á þriðjudag er komið að deildarleik hjá KA/Þór á laugardag þegar lið ÍBV mætir norður. ÍBV er í 2. sæti deildarinnar með 24 stig, en KA/Þór í 6. sætinu með 13 stig og náði með sigri á Stjörnunni í 15. umferðinni að koma sér þægilega langt frá fallbarátunni.
- Olísdeild kvenna í handknattleik, 16. umferð
KA-heimilið kl. 14:30
KA/Þór - ÍBV
- - -
Kvennalið KA í blaki tekur á móti Austfirðingum í Þrótti Fjarðabyggð á laugardag. KA er í 2. sæti deildarinnar með 31 stig úr 13 leikjum, en HK í toppsætinu með 11 stigum meira, að vísu úr 15 leikjum. Þróttur Fjarðabyggð er í botnsætinu með eitt stig.
- Unbroken-deild kvenna í blaki
KA-heimilið kl. 15
KA - Þróttur Fjarðabyggð
- - -
Fyrsta leik karlaliðs Þórs í knattspyrnu í Lengjubikarnum þetta árið, sem átti að vera um liðna helgi, var frestað, en á laugardag hefja Þórsarar leik þegar þeir sækja ÍA heim í Akraneshöllina.
- Lengjudeild karla í knattspyrnu, A-deild
Akraneshöllin kl. 15
ÍA - Þór
- - -
Karlalið KA í knattspyrnu hóf leik í Lengjubikarnum um liðna helgi, en beið ósigur fyrir KR á heimavelli, 0-2. Á laugardag er komið að útileik þegar KA mætir ÍR í Egilshöllinni í Reykjavík.
- Lengjudeild karla í knattspyrnu, A-deild
Egilshöll kl. 16
ÍR - KA
- - -
Þór/KA hefur leik í Lengjubikar kvenna í knattspyrnu um komandi helgi. Upphafleg leikjadagskrá gerði ráð fyrir heimsókn austur á Reyðarfjörð, en leikir hafa verið færðir til og fyrsti leikur verður gegn Stjörnunni í Garðabæ á laugardag.
- Lengjudeild kvenna í knattspyrnu, A-deild
Miðgarður í Garðabæ kl. 16
Stjarnan - Þór/KA
- - -
Áfram heldur baráttan um deildarmeistaratitil karla í íshokkí. SA Víkingar sækja SR heim á laugardag.
- Toppdeild karla í íshokkí
Skautahöllin í Laugardal kl. 17:45
SR - SA
SUNNUDAGUR 8. FEBRÚAR - handbolti
Það er spilað þétt þessa dagana í handboltanum, eftir langt EM-hlé. KA tekur á móti Fram á sunnudag. Að loknum 15 umferðum er KA í 5. sæti deildarinnar með 18 stig, en Fram í 7. sætinu með 16 stig. Bæði lið eiga reyndar leik fyrr í vikunni.
- Olísdeild karla í handknattleik, 17. umferð
KA-heimilið kl. 15
KA - Fram
- - -
Þórsarar eiga einnig heimaleik á sunnudag, eins og grannarnir, og nokkuð skondið að heimaleikjum þessara liða skuli raðað á þennan hátt, að hluta á sama tíma. Þórsarar taka á móti FH. Að 15 umferðum loknum var FH í 4. sæti deildarinnar með 19 stig, en Þórsarar í 11. sæti með sjö stig. Bæði lið spiluðu fyrr í vikunni.
- Olísdeild karla í handknattleik, 17. umferð
Íþróttahöllin á Akureyri kl. 16
Þór - FH
- - -
Lesendur eru hvattir til að minna á íþróttaviðburði hvers kyns sem fram undan eru í meistaraflokkum, sérstaklega ef eitthvað verður út undan og gleymist í þessari vikulegu yfirferð í vikubyrjun hér á akureyri.net - sendið tölvupóst í haraldur@akureyri.net ef koma þarf slíkum upplýsingum á framfæri.