Fótboltafjörið nær hámarki síðdegis
Rúmlega 800 leikmenn, karlar og konur, hófu í gær hlaup, spörk og köll á árlegu Pollamóti Þórs og Samskipa í knattspyrnu. Þar með iðkar liðlega hálft þriðja þúsund íþróttina fallegu á völlum bæjarins því N1 mót KA, sem hófst á miðvikudag, er enn í fullum gangi. Keppni hélt áfram á báðum stöðum í morgun og mótunum lýkur með úrslitaleikjum síðdegis í dag.

Einstaka lið á Pollamótinu fagna marki með meiri tilþrifum en önnur ...
Á völlum Þórs í Þorpinu sýna tilþrif karlar 28 ára og eldri, í fjórum aldursflokkum, en konur tvítugar og eldri í þremur aldursflokkum. Þar er leikgleðin jafnan í fyrirrúmi, ekki síður en á N1 mótinu, en ekki ólíklegt að einhverjir þátttakendur láti hugann reika til þeirra takta sem eitt sinn voru! Hugsi jafnvel hraðar og um annars konar spretti, sendingar og tæklingar en skrokkurinn samþykkir. Á móti strákanna í 5. aldursflokki á Brekkunni leitar hugurinn aftur á móti sennilega til mögulegrar snilldar á komandi árum; hvort, hvenær og hvernig keppendur á KA-svæðinu springi út og hve langt þeir nái í íþróttinni.

Ungur temur, gamall nemur? Myndin af Skagastráknum á N1 mótinu var altént tekin á undan, á miðvikudag, en Geir Kristinn Aðalsteinsson beitti „trivela“ aðferðinni þegar hann sendi á samherja á Pollamótinu í gær.
- Utanfótarskot eða sending með utanfótarspyrnu, sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari KR í HM-stofunni á RÚV á dögunum; nei, „trivela“ sagði landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson og vakti mikla athygli þegar hann notaði portúgalskt heiti þessarar skemmtilegu spyrnutækni. Hvað sem menn kalla þetta eru tilþrifin skemmtileg.
- Geir Kristinn var kunnur handboltamaður á árum áður en galdrarnir eru ekki bara, eða voru, í úlnlið hornamannsins heldur leynast þeir líka í hægri fætinum hið minnsta.
- Keppni lýkur sem fyrr segir síðdegis á báðum mótum. Fjörið í Þorpinu tekur þó ekki enda fyrr en einhvern tíma í nótt því Pollamótinu lýkur með miklu balli í Boganum eins og hefð er fyrir; samkomu fyrir keppendur og fleiri því þangað eru allir velkomnir. Hljómsveitin Skítamórall leikur að þessu sinni og reikna má með að keppendur á mótinu dansi þar úr sér strengina ...
