Fara í efni
Blak

Annað tap SA Víkinga – SR með 2-0 forystu

Haukur Karvelsson og tveir af Akureyringunum í liði SR, Axel Orongan og Heiðar Örn Kristveigarson, fagna einu af fimm mörkum liðsins í kvöld. Mynd: Rakel Hinriksdóttir.

SA Víkingar eru komnir út í horn eftir annað tapið gegn SR í úrslitaeinvígi Toppdeildar karla í íshokkí í kvöld. Lokatölur urðu 1-5 þrátt fyrir að SA Víkingar hafi átt rúmlega 20 skotum fleiri en gestirnir. Reykvíkingar fá því tækifæri til að landa Íslandsmeistaratitlinum í þriðja leik liðanna sem fram fer í Skautahöllinni í Laugardal á laugardag. Einvígið er þó auðvitað ekki búið, vinna þarf þrjá leiki og enginn skyldi afskrifa SA Víkinga. 

Stemningin var flott í Skautahöllinni, vel mætt og frumflutningur stuðningsmannalagsins við inngöngu SA Víkinga setti skemmtilegan svip á leikinn. En úrslitin urðu ekki eins og menn óskuðu sér, þó ekki vantaði tækifærin. Varnarmenn og markvörður SR sáu til þess að þeir fóru heim með sigur í farteskinu.

Gestirnir nýttu færin 

Leikurinn hófst fjörlega og eftir gott færi heimamanna áttu gestirnir stangarskot. SA menn fengu fjóra dóma í fyrstu lotunni á móti einum dómi SR, en gestirnir náðu þó ekki að nýta yfirtöluna nema einu sinni, þegar þeir voru tveimur fleiri og skoruðu fyrra mark lotunnar. Þeir bættu hins vegar við öðru marki skömmu eftir að einni refsingunni hjá SA lauk, þegar rúmar tvær mínútur voru eftir af lotunni.

Litlu munaði að Robbe Delport næði að minnka muninn á lokasekúndum fyrstu lotunnar, komst einn á móti markmanni, en náði ekki að nýta sér það. Sóknin hélt svo áfram, dómur á SR, en leiktíminn rann út, rétt áður en Unnar Hafberg Rúnarsson fékk pökkinn við stöngina og setti hann í netið, en það var of seint, tíminn var runninn út.

Sóknarþungi heimamanna jókst

SA Víkingar hófu aðra lotuna einum fleiri eftir refsinguna sem SR fékk á lokasekúndum þeirrar fyrstu. Það nýtist þeim þó ekki þrátt fyrir þunga sókn. Þeir áttu á þessum kafla mörg hættuleg færi, en Jóhann Björgvin sá til þess að pökkurinn færi ekki inn. Robbe Delport komst aftur einn á móti markmanni, en náði ekki skoti. En loksins um miðja aðra lotuna komu þeir pökknum í markið hjá gestunum, þegar Ormur Jónsson átti glæsilegt skot fyrir utan eftir dómarakast.

SA Víkingar fagna eina marki liðsins í kvöld. Jóhann Már Leifsson, Andri Már Mikaelsson, Ormur Jónsson, sem skoraði markið, Atli Sveinsson og Hafþór Andri Sigrúnarson í hvarfi við Atla. Mynd: Rakel Hinriksdóttir.

Gleðin eftir fyrsta markið varð þó skammvinn því rúmri mínútu eftir mark SA skoraði Heiðar Örn Kristveigarson þriðja mark gestanna. Róbert Steingrímsson varði þá skot Hauks Karvelssonar, en Heiðar Örn Kristveigarson hirti frákastið og skoraði af stuttu færi. Hákon Magnússon jók svo muninn í þrjú mörk þegar sex mínútur voru liðnar af þriðju lotunni. 

Hákon Magnússon skoraði tvö síðustu mörk SR í 5-1 sigri liðsins á SA. Hákon ræðir hér málin við Sindra Gunnarsson, annan af aðaldómurum leiksins. Mynd: Rakel Hinriksdóttir.

Þegar rétt rúmar fimm mínútur voru eftir af leiknum fékk leikmaður SR útilokunardóm, 5+20, og leikmaður SA tvær mínútur á sama tíma. Liðin léku því fjórir á fjóra þar til SA fékk sinn leikmann inn aftur þegar 3:07 voru eftir á klukkunni. Munurinn þó enn þrjú mörk og hafi viðsnúningurinn í fyrsta leiknum verið ævintýralegur hefðu SA Víkingar þurft eitthvað ennþá meira á þessum þremur mínútum. Undir tóku þeir markmanninn út og fjölguðu í sókninni, en SR-ingar náðu pökknum og Hákon Magnússon skoraði yfir allt svellið frá eigin marki, sitt annað mark og fimmta mark gestanna. Sigurinn í höfn og tíminn rann út.

Það var tekist á undir lokin og Ævar Arngrímsson (92) uppskar útilokunardóm. Það dugði SA Víkingum þó ekki á lokamínútunum. Mynd: Rakel Hinriksdóttir.

  • 0-1 - Axel Orongan (6:05). Stoðsending: Níels Hafsteinsson
    Heimamenn fengu tvær refsingar með stuttu millibili, spiluðu þrír á fimm og það tók gestina ekki langan tíma að nýta sér yfirtöluna. Þeir spiluðu á milli sín og reyndu að teygja á fáliðaðri vörn SA, Axel hafði átt skot skömmu áður sem Róbert varði, en sóknin hélt áfram og Axel nýtti næsta tækifæri.
  • 0-2 - Styrmir Maack (17:54). Stoðsending: Þorgils Eggertsson
    Leikmenn SA voru með pökkinn í eigin varnarsvæði, en sending fram endaði í fangi Þorgils sem skautaði áfram, renndi honum til hliðar þar sem Styrmir kom aleinn og skoraði af öryggi.
  • 1-2 - Ormur Jónsson (30:10). Stoðsending: Jóhann Már Leifsson
    Sóknarþungi SA Víkinga bar loks árangur þegar önnur lotan var rétt rúmlega hálfnuð. Ormur Jónsson fékk þá pökkinn eftir dómarakast og skoraði með glæsilegu skoti fyrir utan.
  • 1-3 - Heiðar Örn Kristveigarson (31:22). Stoðsending: Haukur Karvelsson
    Heiðar Örn var fyrstur til eftir að Róbert Steingrímsson varði skot Hauks. 
  • 1-4 - Hákon Magnússon (46:05). Stoðsendingar: Heiðar Örn Kristveigarson, Axel Orongan.
    Enn seig á ógæfuhliðina þegar sex mínútur voru liðnar af þriðju lotunni, gestirnir komnir með þriggja marka forskot.
  • 1-5 - Hákon Magnússon (59:04). 
    SR-ingar einum færri og SA með aukamann í sókninni, autt markið og Hákon skoraði yfir allt svellið.

Unnar Hafberg Rúnarsson og Atli Sveinsson sækja að Jóhanni Björgvini Ragnarssyni í marki SR. Jóhann hafði nóg að gera í markinu og stóð fyrir sínu því þrátt fyrir 43 markskot skoruðu þeir rauðklæddu aðeins einu sinni. Mynd: Rakel Hinriksdóttir.

SA - SR 1-5 (0-2, 1-1, 0-2)

Erfiður dagur í Innbænum, þrátt fyrir ágætis sóknarþugna á köflum náðu SA Víkingar ekki að nýta færin sín í kvöld. Þeir áttu næstum tvö skot fyrir hvert eitt skot gestanna, eins og tölurnar sýna, 43 skot á móti 24, en það eru mörkin sem telja. SR-ingar komnir með tvo sigra gegn engum og fá tækifæri til að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn á eigin heimavelli á laugardag þegar liðin mætast þriðja sinni.

Helstu tölur:

SA

Mörk/stoðsendingar: Ormur Jónsson 1/0, Jóhann Már Leifsson 0/1.
Varin skot: Róbert Steingrímsson 19 af 24 (79,17%).
Refsingar: 10 mínútur.

SR

Mörk/stoðsendingar: Axel Orongan 1/1, Heiðar Örn Kristveigarson 1/1, Styrmir Maack 1/0, Hákon Magnússon 1/0, Níels Hafsteinsson 0/1, Þorgils Eggertsson 0/1, Haukur Karvelsson 0/1.
Varin skot: Jóhann Björgvin Ragnarsson 42 af 43 (97,67%).
Refsingar: 37 mínútur.

Áhorfendur: 430

Leikskýrslan