Val á íþróttafólki KA verður kynnt í dag
											Knattspyrnufélag Akureyrar varð 97 ára síðastliðinn miðvikudag, 8. nóvember, en haldið verður upp á afmælið í dag, sunnudag. Hátíð verður í KA-heimilinu þar sem tilkynnt verður hver eru kosin íþróttakarl og íþróttakona KA 2024 og fleiri viðurkenningar veittar. Samkoman hefst kl. 17.00.
KA hefur birt tilnefningar til ýmissa viðurkenninga á heimasíðu félagsins.
Íþróttakarl KA 2024
- Alex Cambray Orrason - lyftingar
 - Daði Jónsson - handknattleikur
 - Gísli Marteinn Baldvinsson - blak
 - Hans Viktor Guðmundsson - knattspyrna
 - Samir Ómar Jónsson - júdó
 
Íþróttakona KA 2024
- Anna Þyrí Halldórsdóttir - handknattleikur
 - Drífa Ríkarðsdóttir - lyftingar
 - Julia Bonet Carreras - blak
 - Margrét Árnadóttir - knattspyrna
 
KA-lið ársins 2024
- Meistaraflokkur karla í knattspyrnu
 - 2. flokkur karla í knattspyrnu
 - 2. flokkur kvenna í knattspyrnu
 - 6. flokkur karla í handbolta
 - 6. flokkur kvenna í handbolta
 - Meistaraflokkur kvenna í blaki
 - U16 ára kvenna í blaki
 
Þjálfari ársins 2024
- Egill Daði Angantýsson - fótbolti
 - Eirini Fytrou - júdó
 - Hallgrímur Jónasson - fótbolti
 - Heimir Örn Árnason - handbolti
 - Jón Heiðar Sigurðsson - handbolti
 - Julia Bonet Carreras - blak
 - Miguel Mateo Castrillo - blak
 
Þá verður Böggubikarinn afhentur í dag í 11. skipti; farandbikar sem veittur er einstaklingum, pilti og stúlku, á aldrinum 16-19 ára sem þykja efnileg í sinni grein en ekki síður mjög sterk félagslega, eins og segir á vef KA. Viðurkenningin er veitt í minningu Sigurbjargar Níelsdóttur, Böggu, sem fædd var þann 16. júlí 1958 og lést 25. september 2011. Bróðir Böggu, Gunnar Níelsson, er verndari verðlaunanna.