Fara í efni
Baldvin Þór Magnússon

Þórsarar hvattir til að mæta á félagsfund

Mynd: Þorgeir Baldursson

Aðalstjórn Íþróttafélagsins Þórs hefur boðað til félagsfundar í Hamri á morgun, þriðjudaginn 3. mars, klukkan 17:30.

Framkvæmdir hafa staðið við gervigrasvöll sem tekinn verður í notkun í vor, og nýlega var undirritaður samningur við Akureyrarbæ um að íþróttahús rísi á Þórssvæðínu.

Dagskrá fundarins verður, skv. tilkynningu á heimasíðu Þórs:

  • Staðan á nýjum gervigrasvelli.
  • Nýtt samkomulag um íþróttamiðstöð á Þórssvæðinu.
  • Framtíðarsýn félagssvæðis Þórs.

„Við hvetjum Þórsara til að fjölmenna í félagsheimilið á þriðjudag og taka þátt í umræðum,“ segir í tilkynningunni.