Fara í efni
Baldvin Þór Magnússon

Spánverjinn Kevin Vazquez áfram með Þór

Kevin Vazquez í fyrsta leiknum með Þór, 1:0 sigri á Breiðabliki á heimavelli. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Spænski knattspyrnumaðurinn Kevin Vazquez, sem lék síðari hluta síðasta keppnistímabil með Þór, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið. Samningurinn gildir út næsta keppnistímabil.
 
Vazquez kom til Þórs í „sumarglugganum“ í lok júlí og reyndist gríðarlegur happafengur. Fyrsti leikur hans fyrir félagið var gegn Breiðabliki á heimavelli 4. ágúst þar sem Þórsarar fögnuðu 1:0 sigri.
 
„Kevin var í lykilhlutverki á síðasta tímabili þegar Þór hélt sæti sínu á meðal þeirra bestu. Liðið vann sex af þeim ellefu leikjum sem hann spilaði. Hann var okkur gríðarlega mikilvægur, bæði innan vallar sem utan,“ segir í tilkynningu á Facebook síðu knattspyrnudeildar Þórs. „Það gleður okkur því mikið að á komandi tímabili fáum við að njóta krafta hans frá fyrsta leik. Knattspyrnudeild Þórs fagnar því að Kevin verði áfram í Þorpinu og hlakkar til komandi tímabils með honum.“