Fara í efni
Baldvin Þór Magnússon

Öruggur sigur KA í fyrsta leik eftir EM-fríið

Ágúst Elí Björgvinsson er hér í marki KA í öruggum sigri á ÍR í Reykjavík í kvöld. Þetta var fyrsti deildarleikur hans hér á landi í átta ár. Myndir: Hafliði Breiðfjörð

KA-menn áttu ekki í erfiðleikum með ÍR-inga í kvöld, þegar liðin hófu leik á ný í efstu deild Íslandsmótsins í handbolta, eftir langt hlé gegn Evrópumóts landsliða. Leikurinn var á heimavelli ÍR við Skógarsel í Reykjavík og KA-strákarnir fögnuðu sex marka sigri, 37:31, eftir að staðan var 18:13 í hálfleik.

KA er nú í fimmta sæti deildarinnar með 20 stig en lið ÍR er neðst með fimm stig. Bæði hafa lokið 16 leikjum.

Ekki þarf að hafa langt mál um gang leiksins nema hvað nefna verður að upphafsmínúturnar voru ekki vísbending um það sem koma skyldi. ÍR-ingar byrjuðu nefnilega af miklum krafti og eftir fjórar og hálfa mínútu var staðan 4:0 þeim í hag. Baldur Fritz Bjarnason hafði gert þrjú markanna og áður en yfir lauk hafði hann skotið boltanum 15 sinnum í KA-markið! Það dugði liði hans þó skammt.

KA náði fyrst forystu þegar 11 og hálf mín. var liðin, 7:6, og munurinn í fyrri hálfleik var mestur fimm mörk, þegar leiktíminn rann út. KA hélt áfram öruggu forskoti í seinni hálfleik, þegar fimm mín. voru eftir munaði átta mörkum á liðunum og löngu ljóst að stigin færu norður yfir heiðar.

Markvörðurinn Ágúst Elí Björgvinsson var í fyrsta skipti með KA í kvöld. Hann gekk til liðs við félagið fyrir skömmu eftir að hafa leikið í nærri átta ár með félagsliðum í Danmörku og Svíþjóð. „Ágúst Elí sýndi á tíðum lipurleg tilþrif í hröðum leik þar sem bæði lið lögðu ekki megináherslu á varnarleik. Þetta var hans fyrsti alvöru keppnisleikur síðan í byrjun október,“ segir í umfjöllun handbolti.is í kvöld. Ágúst Elí varði átta skot skv. HB Statz.

Jens Bragi Bergþórsson einblínir á ÍR-markið í kvöld. Hann var öflugur á línunni sem oft áður og gerði sex mörk fyrir KA .Mynd: Hafliði Breiðfjörð

Mörk KA: Bjarni Ófeigur Valdimarsson 7, Jens Bragi Bergþórsson 6, Giorgi Arvelodi Dikhaminjia 5, Arnór Ísak Haddsson 5, Einar Birgir Stefánsson 3, Logi Gautason 3, Morten Linder 3, Magnús Dagur Jónatansson 2, Daði Jónsson 1, Einar Rafn Eiðsson 1, Smári Steinn Ágústsson 1.

Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 8, Bruno Bernat 2.

Mörk ÍR: Baldur Fritz Bjarnason 15, Jökull Blöndal Björnsson 6, Bernard Kristján Owusu Darkoh 3, Patrekur Smári Arnarsson 3, Elvar Otri Hjálmarsson 2, Bergþór Róbertsson 1, Örn Kolur Kjartansson 1. Varin skot: Ólafur Rafn Gíslason 9, Alexander Ásgrímsson 5.

 

Leikskýrslan

Tölfræði og gangur leiksins

Staðan í deildinni

Dagur Gautason er genginn til liðs við KA á ný en lék ekki í kvöld heldur var í hlutverki aðstoðarmanns Andra Snæs Stefánssonar þjálfara í kvöld. Dagur mun lítillega meiddur. Mynd: Hafliði Breiðfjörð