Listskautar og hlaup í Skautahöllinni
Það verður nóg um að vera í Skautahöllinni á Akureyri í kvöld og um helgina. Íslandsmót á listskautum fer fram á morgun og sunnudag, en helgin opnuð með Íslandsmóti í skautahlaupi í kvöld. Ókeypis aðgangur er inn á mótið alla keppnisdagana.
Íslandsmót Skautasambands Íslands í skautahlaupi hefst í kvöld kl. 21:30. Keppt verður í nokkrum aldurs- og getuflokkum. Keppni í skautahlaupi heldur síðan áfram kl. 16:30 á laugardag og er þá keppt í lengri vegalengdum. Átta þátttakendur eru í skautahlaupinu.
Keppni á listskautum hefst kl. 10:45 á morgun, laugardag, og stendur fram eftir degi. Á sunnudag hefst keppni á listskautum kl. 9:00. Keppt er með frjálsum aðferðum í tveimur flokkum. Í keppni á listskautum eru 45 keppendur skráðir til leiks. Að keppni lokinni fer fram verðlaunaafhending.