Fara í efni
Baldvin Þór Magnússon

Jóhann Már Leifsson kominn yfir 400 stig

Jóhann Már Leifsson, leikmaður SA Víkinga, íshokkíliðs Skautafélags Akureyrar, náði þeim áfanga um liðna helgi að fara yfir 400 stig á ferlinum. Stigin eru samanlögð mörk og stoðsendingar. Jóhann Már hefur skorað 179 mörk í meistaraflokki og gefið 222 stoðsendingar og því kominn í 401 stig. „Við erum afar heppin að eiga Jóa í okkar röðum,“ er skrifað í stuttum pistli um þetta afrek Jóhanns á Facebook-síðu íshokkídeildar SA.

Til upprifjunar þá var Jóhann Már atkvæðamikill í leikjum helgarinnar, sérstaklega þeim fyrri, þegar litið er til markaskorunar. Hann skoraði fjögur mörk og átti eina stoðsendingu í fyrri leik helgarinnar og svo eitt mark og átti tvær stoðsendingar í þeim seinni, samtals átta stiga helgi hjá kappanum.

Í pistli á vef Íshokkísambands Íslands þegar Jóhann Már var valinn íshokkímaður ársins 2022 kemur meðal annars fram að hann hafi verið lykilmaður í liði SA frá 14 ára aldri, en hann er fæddur 1993. Hann hefur leikið nánast allan sinn feril með SA, ef frá er talið eitt tímabil með Niagra Furey 2011-2012 og eitt tímabil með Motala í Svíþjóð 2015-2016. Auk þess að vera lykilleikmaður í liði SA Víkinga hefur hann einnig leikið með landsliðum Íslands frá unglingsaldri og verið fastamaður og lykilleikmaður í A-landsliðinu. Í safni Jóhanns, auk yfir fjögur hundruð stiga í leikjum með SA, eru svo auðvitað fjölmargir Íslandsmeistaratitlar og aðrar viðurkenningar.