Fara í efni
Baldvin Þór Magnússon

Haukarnir of stór biti fyrir KA/Þór

Joan Rúnadóttir Johannesen skoraði 10 mörk fyrir KA/Þór gegn Haukum og var markahæst annan leikinn í röð. Mynd: Egill Bjarni Friðjónsson.

KA/Þór fékk Hauka í heimsókn í gær í fyrsta heimaleik liðsins í efstu deild kvenna í handknattleik, Olísdeildinni, á þessu keppnistímabili. Gestirnir fóru með 33:26 sigur af hólmi og hafa unnið fyrstu tvo leiki sína en KA/Þór tapað fyrstu tveimur.

Framan af leik var jafnræði með liðunum og eftir um 10 mínútna leik var staðan 4:3 KA/Þór í vil. Þá skoruðu Haukar 4 mörk í röð og héldu 3-4 marka forskoti þar til um fjórar mínútur voru til leikhlés. Þá var staðan 14:10 fyrir Hauka en á þessum síðustu fjórum mínútum hálfleiksins bættu þær við fjórum mörkum án þess að KA/Þór næði að svara fyrir sig leiddu með 8 marka mun í leikhléi, 18:10.

Bergrós Ásta Guðmundsdóttir skoraði 2 mörk og átti 5 stoðsendingar gegn Haukum í gær. Mynd: Egill Bjarni Friðjónsson.

Og eftir að Haukarnir skoruðu fyrstu tvö mörkin eftir hlé og breyttu stöðunni í 20:10 voru úrslitin ráðin. Þrátt fyrir það lögðu KA/Þórs-stelpur árarnar aldrei í bát og gerðu sitt besta til að klóra í bakkann. Þær náðu hins vegar aldrei að komast nær Haukunum en sjö mörkum og geta tekið það með sér úr leiknum að hafa þó unnið seinni hálfleikinn. Lokatölur 33:26 gegn sterkum andstæðingi sem spáð er 2. sæti deildarinnar.

Næsti leikur KA/Þórs er útileikur gegn ÍR næstkomandi laugardag en ÍR-ingar hafa unnið fyrstu tvo leiki sína í deildinni.

Mörk KA/Þórs: Joan Rúnadóttir Johannesen 10 (þar af 6 víti), Sólveig Lára Kristjánsdóttir 5, Lydía Gunnþórsdóttir 4, Agatha Kjærbæk Djurhuus 3, Bergrós Ásta Guðmundsdóttir 2, Lenka Ratvajská 1, Herdís Eiríksdóttir 1.

Varin skot: Ástrós Bender Mikaelsdóttir 7, Ingibjörg Lovísa Hauksdóttir 2.

Mörk Hauka: Sonja Lind Sigsteinsdóttir 10, Jóhanna Margrét Sigurðardóttir 8 (þar af 2 víti), Embla Steindórsdóttir 6, Aníta Eik Jónsdóttir 4, Guðmunda Auður Guðjónsdóttir 2, Alexandra Líf Arnarsdóttir 1, Sara María Odden 1, Þóra Hrafnkelsdóttir 1.

Varin skot: Sara Sif Helgadóttir 4, Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir 3, Erla Rut Viktorsdóttir 0.