Handbolti: Langþráður heimaleikur Þórsara
Sjöunda umferð efstu deildar karla í handknattleik, Olísdeildarinnar, hófst í gær og verður fram haldið í kvöld og næstu kvöld. Fyrri Akureyrarleikurinn er í kvöld þegar Þór tekur á móti Stjörnunni.
Þórsarar töpuðu fyrir ÍBV í Eyjum í síðustu umferð með sex marka mun, 37-31, síðastliðið föstudagskvöld. Sama kvöld vann Stjarnan heimaleik gegn KA, 35-33. Fyrir umferðina hafði Stjarnan aðeins unnið einn leik, en færðist upp í 7. sætið með sigrinum, situr þar með fimm stig úr fyrstu sex leikjunum. Þórsarar hafa unnið tvo leiki af fyrstu sex og eru í 9. sætinu með fjögur stig, jafnmörg stig og Fram sem er sætinu ofar og HK sem er sætinu neðar.
Eftir fjóra útileiki í röð í deildinni og einn í bikarkeppninni er loks komið að heimaleik hjá Þórsliðinu.
- Handbolti
Olísdeild karla, 7. umferð
Íþróttahöllin á Akureyri kl. 19
Þór - Stjarnan