Fara í efni
Baldvin Þór Magnússon

Bray og McDonald mæta á ný – skráning í dag

Kynnirinn John McDonald, lengst til vinstri, og Russ Bray, dómari og „kallari“ hægra megin, með Ingibjörgu Magnúsdóttur og Alexander Veigari Þorvaldssyni, sigurvegurum „Sjally Pally“ á síðasta ári. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Skráning hefst á hádegi í dag, sunnudag, á stærsta pílumót ársins hér á landi, opna Akureyrarmótið sem verður í Sjallanum 10. og 11. apríl og kallað hefur verið „Sjally Pally“ með vísan í heimsmeistaramótið sem haldið er árlega í „Ally Pally“ í London. 

Keppendur í Sjallanum verða 224; 192 karlar og 32 konur, og ef marka má vinsældir mótsins undanfarin ár er næsta víst að áhugasamir verða að hafa hraðar hendur. Í fyrra fylltist mótið á fimm mínútum, að því er segir á heimasíðu Þórs. 

2,5 milljónir í verðlaun

„Þetta verður í þriðja skiptið sem Akureyri Open verður í Sjallanum. Frábær stemning hefur myndast fyrir mótinu enda er öllu til tjaldað þessa helgi í Sjallanum. Það er ljóst að eftirspurn eftir þátttöku í mótið verður gríðarleg og því hvetjum við þá aðila sem hafa áhuga á að taka þátt að vera tilbúin að skrá sig,“ segir í tilkynningunni. Þar kemur fram að heildar verðmæti vinninga á mótinu verði 2 og hálf milljón króna.

Kallarinn og kynnirinn mæta aftur

„Mótið í ár verður hið glæsilegasta líkt og síðustu ár. Frægasti dómari og kallari í pílukasti, Russ Bray, verður á staðnum og mun sjá um að kalla úrslitakvöldið. Honum til halds og traust verður John McDonald. Þeir tveir hafa verið á stóra sviðinu í pílukasti til fjölda ára og því frábærar fréttir að fá þá aftur í SjallyPally!“ segir á heimasíðu Þórs.

Þátttökugjaldið í mótið er 12.500 kr. Almenn miðasala á úrslitakvöldið verður auglýst þegar nær dregur, segir í tilkynningu Þórsara, og að þátttakendur hafi forgang í miðakaupum á úrslitakvöldið.

Sjally Pally 2026 á Facebook

  • Mótinu í fyrra var streymt á Youtube í samstarfi við LiveDartsIceland. Með því að smella hér er hægt að sjá hápunkta frá mótinu.

Facebook síða píludeildar Þórs