Fara í efni
Aron Einar Gunnarsson

Þór-Zalgiris í dag í Evrópudeild ungmenna

Pétur Orri Arnarson fyrirliði Þórsliðsins, lengst til hægri, sekúndubroti áður en hann hóf Íslandsbikarinn á loft síðasta haust og mikil sigurgleði braust út! Mynd: Ármann Hinrik

Íslandsmeistarar Þórs í 2. flokki mæta liði Zalgiris frá Litháen í Evrópukeppninni í knattspyrnu í dag á heimavelli. Um er að ræða UEFA Youth League – Evrópudeild ungmenna. Leikurinn hefst klukkan 16.00 á VÍS-vellinum, gervigrasvelli Þórs á Ásnum. Seinni viðureignin verður í Litháen eftir mánuð, miðvikudaginn 14. október.

Aðalgeir Axelsson og Ármann Pétur Ævarsson eru þjálfarar Þórsliðsins og sá fyrrnefndi segir hópinn hlakka mikið til leiksins í dag. „Já, það er óhætt að segja það. Við höfum beðið eftir þessu í tæplega ár, erum fullir tilhlökkunar að keyra á þetta og sýna hvað í okkur býr fyrir framan fólkið okkar á VÍS vellinum,“ segir Aðalgeir við akureyri.net. Þetta er í fyrsta sinn sem Þór tekur þátt í Evrópukeppni í þessum aldursflokki.

„Eigum marga góða leikmenn“

Íslandsmeistaraliðið í fyrrahaust skipuðu strákar fæddir 2006, 2007 og 2008. „Reglurnar eru þannig að við megum bara hafa þrjá stráka fædda 2007 í 20 manna hóp á leikdegi, annars eru þetta bara strákar fæddir 2008 og yngri svo það eru einhverjar breytingar frá liðinu sem varð Íslandsmeistari í fyrra en við búum vel; eigum marga góða leikmenn,“ segir þjálfarinn.

Þrír strákar sem nú eru á yngsta ári í 2. flokki spila mikið með meistaraflokki í sumar, Einar Freyr Halldórsson, sem er þar í lykilhlutverki, Ásbjörn Líndal Arnarsson, sem tekið hefur þátt í 17 leikjum í Bestu deildinni og Sverrir Páll Ingason (14 leikir) eru allir fæddir 2008, svo og Peter Ingi Helgason, sem hefur komið við sögu í fimm leikjum í Bestu deildinni.

„11 geggjaðir gaurar“

Á laugardagskvöldið kemur mætast KA og Þór í gríðarlega mikilvægum leik í botnbaráttu Bestu deildarinnar. Spurður hvort sú viðureign skipti ekki máli varðandi það hvaða leikmenn þjálfarar 2. flokks fá að nota í dag svarar Aðalgeir: „Jú, það hefur auðvitað áhrif. Við erum með langflestar mínútur í sumar af leikmönnum úr 2. flokki í Bestu deildinni og það er það sem við viljum. Fólk þarf bara að mæta snemma á völlinn í dag til að sjá hverjir, ef einhverjir, úr meistaraflokknum verða með okkur! Við stillum upp 11 geggjuðum gaurum sem eru klárir í að skilja allt eftir á vellinum!“

Aðalgeir segir Þórsara aðeins hafa skoðað mótherjana frá Litháen, „en ég get ekki sagt að við vitum mikið um þá. Aðal fókusinn er á okkur sjálfa. Þetta verður krefjandi verkefni en við erum klárir.“

  • Fótbolti
    Evrópukeppni – Evrópudeild ungmenna
    VÍS-völlurinn (Þórsvöllurinn, gervigras á Ásnum) kl. 16
    Þór - Zalgiris

Sigurvegarinn úr tveggja leikja einvígi Þórs og Zalgiris mætir St. Patrick's Athletic frá Írlandi í næstu umferð, 28. október og 4. nóvember, og það lið sem hefur betur þar leikur við enska félagið Chelsea, að því gefnu að Lundúnaliðið nái að slá út Flora Tallinn frá Eistlandi eða Havnar Boltfélag frá Færeyjum; fyrri leikur í einvígi Eistanna og Færeyinganna er í dag.