Fara í efni
Aron Einar Gunnarsson

Leik Þórs og Selfoss frestað til morguns

Frá leik Þórs og Fylkis fyrr í vetur, en bæði þessi lið berjast við að forðast fall úr deildinni, eins og Hamar úr Hveragerði. Mynd: Guðjón Andri Gylfason.

Leik Þórs og Selfoss í 1. deild karla í körfubolta sem átti að fara fram á Selfossi í kvöld hefur verið frestað þar sem vegir um Öxnadalsheiði og Holtavörðuheiði eru enn lokaðir og innanlandsflug liggur niðri. 

Forsvarsmenn körfuknattleiksdeildar Þórs hafa fengið staðfestingu frá mótastjóra á að leiknum hafi verið frestað og ætlunin sé að spila á morgun, eins og reglur gera ráð fyrir. Leiktíminn hefur þó ekki verið ákveðinn.

Leikur Þórs og Selfoss er í lokaumferð 1. deildarinnar og hlýtur þá að vakna spurning hvort frestun hans hefur ekki þau áhrif að fresta þurfi flestum eða öllum leikjum lokaumferðarinnar þar sem enn er keppt um sætaröðun, sem skiptir máli fyrir umspil um sæti í Bónusdeildinni, og leikir þriggja neðstu liðanna, Þórs, Hamars og Fylkis, skipta máli varðandi það hvaða lið fellur úr deildinni. 

Kvennaliðið tapaði 0-20

Í dag var einn leikur á dagskrá 1. deildar kvenna þar sem lið KV átti að sækja Vestra heim á Ísafjörð, en dagsetning og tímasetning á þeim leik hefur verið tekin út og er akureyri.net ekki kunnugt um hvort þar er um frestun að ræða eða að leikur hafi verið gefinn.

Í mótakerfi KKÍ hefur hins vegar verið staðfest að kvennalið Þórs tapar leik sínum gegn Selfossi 0-20 þar sem KKÍ sat fast á því að liðið ætti að ferðast, en stjórn körfuknattleiksdeildar Þórs tók þá ákvörðun að senda liðið ekki af stað vegna hættulegra aðstæðna, eins og fjallað var um í fréttum akureyri.net í gær. Deildin á yfir höfði sér sekt samkvæmt reglum KKÍ og mun upphæðin fara eftir ferðakostnaði og skiptast á milli KKÍ og liðsins sem Þór átti að mæta í gær, Selfoss.

Þór er í 3. sæti 1. deildar kvenna, hefur unnið 13 leiki og á tveimur leikjum ólokið, gegn Vestra á sunnudag og Snæfelli á þriðjudag. Fjölnir hefur unnið 15 leiki, en hefur lokið sínum leikjum. Þór þarf því sigur í báðum sínum leikjum til að ná 2. sæti deildarinnar.

Eins og sjá má voru vegirnir um Öxnadalsheiði og Holtavörðuheiði lokaðir kl. 11:30. Skjáskot af vef Vegagerðarinnar.