Fara í efni
Aron Einar Gunnarsson

Langþráð grannaglíma og blakað í Boganum

Þegar vorar fækkar heldur þeim íþróttakappleikjum sem rata á lista íþróttavikunnar enda hafa akureyrsk meistaraflokkslið í blaki, handbolta, íshokkí og körfubolta lokið sínum keppnistímabilum. Nú síðast voru það karlarir í blakliði KA sem kláruðu sitt mót með Íslandsmeistaratitli, en blakinu er þó ekki alveg lokið því fram undan er stærsta blakmót sem haldið er hérlendis árlega, Öldungur, sem fram fer í Boganum og KA-heimilinu. 

Knattspyrnan tekur við þegar íþróttafólkið í áðurnefndum greinum fer í sumarfrí og á þeim vettvangi er á dagskrá viðburður á laugardaginn sem ekki hefur átt sér stað síðan 2002. Hér er átt við viðureign Þórs og KA í efstu deild karla í knattspyrnu. Besta deild karla er komin á fullt, fjórum umferðum lokið og sú fimmta á næsta leiti.

FIMMTUDAG TIL LAUGARDAGS, 30. APRÍL TIL 2. MAÍ - blak

Fram undan er risahelgi í blakinu á Akureyri þegar blakdeild KA heldur Öldung 2026, stærsta blakmót ársins sem ætlað er eldra blakfólki. Spilað er í Boganum og í KA-heimilinu.

Á fimmtudags- og föstudagskvöld er skemmtikvöld á dagskrá í KA-heimilinu, en lokahóf mótsins fer fram í íþróttahúsinu Boganum á laugardagskvöld.

FIMMTUDAGUR 30. APRÍL - fótbolti

Þór/KA sækir nýtt sameiginlegt lið Grindavíkur og Njarðvíkur heim í 2. umferð Bestu deildar kvenna í knattspyrnu. Þór/KA náði í stig á heimavelli gegn FH í fyrsta leik, en Grindavík/Njarðvík tapaði naumlega fyrir Val á Hlíðarenda, 2-1.

  • Besta deild kvenna í knattspyrnu
    JBÓ-völlurinn í Njarðvík kl. 18
    Grindavík/Njarðvík - Þór/KA

Leikurinn á fimmtudag er reyndar ekki fyrsta viðureign þessara liða þó svo Grindavík/Njarðvík sé að stíga sín fyrstu skref í Bestu deild kvenna. Þessi lið mættust í Boganum í vetur í A-deild Lengjubikarsins. Þór/KA vann þann leik 1-0 með marki Bríetar Fjólu Bjarnadóttur.

LAUGARDAGUR 2. MAÍ - fótbolti

Strax næsta laugardag er líklega komið að stærsta og fjölmennasta leik karlaliðs Þórs í knattspyrnu á nýjum heimavelli á Þórssvæðinu, VÍS-vellinum – gervigrasvelli á Ásnum – þegar grannarnir af Brekkunni koma í heimsókn. Þór spilaði fyrsta leik sinn á vellinum í liðinni viku, en völlurinn er með keppnisleyfi til bráðabirgða enda ýmislegt í umhverfi vallarins og umgjörð sem er óklárað þó völlurinn og aðstaða leikmanna sé komin nokkurn veginn í endanlegt horf.

Búast má við mikilli ásókn í miða á völlinn og líklega best fyrir stuðningsfólk liðanna að fylgjast vel með fréttum á vefjum og samfélagsmiðlum félaganna um framkvæmd á miðasölu og öðru í kringum leikinn.

  • Besta deild karla í knattspyrnu
    Þórsvöllur (VÍS-völlurinn - gervigras á Ásnum) kl. 16
    Þór - KA

Þegar Þór og KA leiða saman hesta sína á nýja gervigrasinu á Ásnum verða liðnir 8.675 dagar síðan liðin mættust síðast í efstu deild Íslandsmótsins. Þór og KA hafa ekki verið samtímis í efstu deild karla síðan 2002. Á þeim árum deildu félögin heimavelli, spiluðu bæði á Akureyrarvelli. KA vann báðar viðureignir þessara liða það sumarið, 1-0, í heimaleik sínum 30. maí og 1-0 í heimaleik Þórs 1. ágúst.

KA hefur átt brösótta byrjun í Bestu deildinni þetta árið, þrír tapleikir á heimavelli og eitt jafntefli á útivelli. Þór vann tvo af fyrstu þremur leikjum sínum, en þegar íþróttavikan kemur fyrir sjónir lesenda á liðið eftir að mæta Breiðabliki á útivelli í 4. umferðinni.