Fara í efni
Aron Einar Gunnarsson

Akureyrskt íshokkífólk í eldlínunni erlendis

Sunna Björgvinsdóttir og Katrín Rós Björnsdóttir gera það gott með íshokkíliði sínu, Södertälje SK, í Svíþjóð. Myndin er af vef SA.

Akureyringar hafa löngum átt frábært íshokkífólk á landsvísu, lengst af öllum keppnum verið í fararbroddi og unnið nánast óteljandi titla. Íshokkífólk frá Akureyri leitar líka suður yfir heiðar og er í lykilhlutverkum hjá liðum SR og Fjölnis. Einnig hefur færst nokkuð í vöxt á undanförnum árum að ungt íshokkífólk héðan haldi utan og reyni fyrir sér með erlendum liðum. 

Á vef Skautafélags Akureyrar er að finna gott yfirlit um íshokkífólk frá Akureyri sem leikur erlendis. Nú líður að hápunkti íshokkítímabilsins í Evrópu, úrslitakeppnir að hefjast og okkar fólk í eldlínunni víða. Úrslitakeppni sænsku NDHL-deildarinnar hófst í gær og þar eru þrjár íshokkíkonur frá SA sem berjast um sæti í SDHL-deildinni, efstu deild í Svíþjóð. Akureyringar leika einnig íshokkí í Hollandi, Þýskalandi og Danmörku og þar styttist einnig í úrslitakeppnir. 

Hér að neðan er gripið niður í yfirlitið á vef SA þar sem sagt er frá akureyrsku íshokkífólki erlendis. Því miður eru ekki tiltækar myndir af öllum sem hér er fjallað um. Sú yngsta sem hér um ræðir er tæplega 17 ára, en þær elstu eru 26 ára.

  • Sunna Björgvinsdóttir (2000)
    Sunna hefur leikið í sterkum liðum í næstefstu deild í Svíþjóð í nokkur ár. Hún „hefur átt mjög gott tímabil með Södertälje SK í NDHL (Nationella Damhockeyligan) í Svíþjóð og hefur verið á meðal bestu leikmanna deildarinnar eins og undanfarin ár. Hún leiðir lið sitt í stigum með 21 stig í 20 leikjum en liðið hefur tryggt sér sæti í 8 liða úrslitum.“ Fyrsti leikur liðsins í átta liða úrslitunum gegn Örebro var í gær.
  • Katrín Rós Björnsdóttir (2004)
    Katrín Rós hefur áður leikið með Örebro, en er nú liðsfélagsi Sunnu hjá Södertälje SK, ein af máttarstólpum í varnarlínu liðsins. Hún verður í sviðsljósinu með Sunnu gegn sínu gamla liði, Örebro, en þaðan kom hún til Södertälje fyrir yfirstandandi tímabil.
  • Saga Margrét Sigurðardóttir Blöndal (2003)
    Saga er ein þeirra sem haldið hefur suður yfir heiðar og spilað þar íshokkí, en hún var liðsmaður Skautafélags Reykjavíkur um tíma. Hún spilar í Svíþjóð eins og þær Sunna og Katrín Rós. Saga er lykilleikmaður í liði IF Björklöven í Umeå, bæði í vörn og sókn, hefur skilað 26 stigum í 32 leikjum, það er samanlögð mörk og stoðsendingar. Saga hóf einnig úrslitakeppnina með sínu liði í gær og mætti Rögle í fyrstu umferðinni.


    Saga Blöndal í leik með Björklöven. Myndin er af vef félagsins.
  • Gunnar Aðalgeir Arason (2001)
    Gunnar hélt utan til Hollands eftir síðasta tímabil með SA og leikur með Gröningen í næstefstu deild þar. Hann er á meðal stigahæstu leikmanna í vörn Gröningen, kominn með 14 stig í 17 leikjum. Liðið situr í 7. sæti deildarinnar og hefur tryggt sér sæti í úrslitakeppninni sem hefst í mars.


    Gunnar Aðalgeir Arason í leik með Gröningen í Hollandi. Myndin er af vef SA.
  • Helgi Þór Ívarsson (2004)
    Helgi leikur með Baden Rhinos í fjórðu efstu deild í Þýskalandi og er á sínu fyrsta tímabili sem aðalmarkvörður liðsins. Helgi hefur eignað sér byrjunarliðsstöðuna með mjög góðri frammistöðu í vetur og spilar flestalla leiki liðsins, sem er í 4. sæti síns riðils.


    Helgi Þór Ívarsson við öllu búinn í marki Baden Rhinos í Þýskalandi. Myndin er af vef SA.
  • Ólafur Baldvin Björgvinsson (2006)
    Ólafur Baldvin var fjarverandi vegna meiðsla um tíma í vetur, en hann er á sínu fyrsta tímabili með Esbjerg í 2. deildinni í Danmörku. Liðið er langefst í deildinni og hefur tryggt sér sæti í úrslitakeppninni. Ólafur Baldvin hefur staðið sig vel með liðinu í vetur, hefur skilað sjö stigum í 13 leikjum.



    Ólafur Baldvin Björgvinsson í leik með íslenska landsliðinu. Myndin er af vef ÍHÍ.
  • Birta Júlía Þorbjörnsdóttir (2000)
    Birta Júlía er markvörður og leikur með Odense í efstu deild Danmerkur. Liðið er í 2. sæti deildarinnar og hefur Birta Júlía verið í baráttu um byrjunarliðsstöðuna í vetur. Hún hefur spilað verl í þeim leikjum sem hún hefur verið í byrjunarliðinu og hafa þeir leikir allir unnist.
  • Díana Lóa Óskarsdóttir (2009)
    Díana er einnig markvörður og er sú yngsta í þessum hópi sem hér er talin upp, er á 17. aldursári. Hún leikur með ungmennaliði Almtuna í Uppsölum í Svíþjóð og hefur verið í baráttu um að fá leiki með aðalliðinu. Aðallið félagsins leikur í sömu deild og lið Sunnu og Katrínar Rósar, NDHL. Díana Lóa á í samkeppni við annan íslenskan markvörðu, Andreu Bachmann, sem kemur úr röðum Skautafélags Reykjavíkur.