Akureyrskir þjálfarar og HM U18 á Akureyri
Skautahöllin á Akureyri mun hýsa keppni í einni deild Heimsmeistaramóts U18 kvenna í janúar. Íshokkísambandið hefur gengið frá ráðningu þjálfara liðsins. Aðalþjálfarinn og annar aðstoðarþjálfarinn koma úr röðum SA og hinn aðstoðarþjálfarinn á ættir að rekja í Skautafélag Akureyrar.
Sunna Björgvinsdóttir, sem sneri heim til SA í sumar til að spila og þjálfa, hefur verið ráðin aðalþjálfari U18 landsliðsins. Aðstoðarþjálfarar verða Akureyringurinn Kolbrún María Garðarsdóttir og Hákon Marteinn Magnússon sem kemur úr röðum Skautafélags Reykjavíkur, en er af mikilli hokkíætt á Akureyri.
Verkefni U18 landsliðsins er HM á Akureyri í janúar 2027, eins og áður sagði. Fram kemur í frétt Íshokkísambandsins að fyrstu æfingabúðir verði í byrjun desember og „frá þeim tíma verður æft nokkuð stíft og snarpt fram að keppninni í janúar. Fram undan er svo fyrsta helgarmót U17 kvenna og mun þjálfarateymið fylgjast vel með gangi mála þar,“ segir á vef ÍHÍ.
Um þjálfarana þrjá segir í frétt ÍHÍ:
Aðalþjálfari: Sunna Björgvinsdóttir er 26 ára og lék með Skautafélagi Akureyrar um árabil þar til hún flutti til Svíþjóðar árið 2019. Þar lék hún meðal annars með Sodertelje SK, IF Troja-Ljungby, IF Leksands (SDHL) og HV71 (SDHL) með mjög góðum árangri. Hún hefur leikið með kvennalandsliði Íslands síðan 2015, þá 15 ára, og hefur verið fastur leikmaður landsliðsins allar götur síðan og í dag fyrirliði landsliðsins. Sunna er ein okkar allra besta íshokkíkona og er nú komin heim hokin af reynslu eftir árin í Svíþjóð.
Aðstoðarþjálfarar: Kolbrún Garðarsdóttir og Hákon Marteinn Magnússon. Kolbrún er uppalin hjá SA en síðustu árin lék hún með Fjölni og var lykilleikmaður og fyrirliði í kvennaliði Fjölnis sem var Íslandsmeistari 2024, þá vann liðið þann einstaka árangur að verða fyrsta Fjölnis liðið til þess að verða Íslandsmeistari í hópíþrótt frá því félagið var stofnað. Allir sem þekkja til íshokkís vita að það er mikill fengur fyrir U18 liðið okkar að fá reynslubolta eins og Kollu í þjálfarateymið. Sama má segja um Hákon Martein, sem í dag skipar sér í hóp bestu leikmanna í Toppdeild karla. Hákon var aðstoðarþjálfari hjá U18 pilta á síðasta tímabili með góðum árangri, en færir sig nú yfir og hefur samstarf við Sunnu. ÍHÍ er afskaplega ánægt með hópinn og væntir mikils af honum.