Fara í efni
Alfreð Gíslason

Sigurdans Þórsara eftir spennuleik við KA

Daninn William Skovager var markahæstur Þórsara í kvöld með sex mörk. Hann tók að sér aðalhlutverkið eftir að landi hans, Bertram Simonsen, fékk rauða spjaldið þegar 20 mínútur voru eftir. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Þórsarar stigu sannkallaðan sigurdans í leikslok í KA-heimilinu í kvöld eftir að þeir unnu óhemju sætan sigur á grönnum sínum í KA, 35-31, í þriðju umferð úrvalsdeildar karla í handbolta, eftir mikið jafnræði og spennu nánast allan tímann ef upphafsmínúturnar eru undanskildar.

Ríflega eitt þúsund áhorfendur troðfylltu KA-heimilið og stemningin var gríðarleg frá fyrstu mínútu. Þórsarar fengu mun minni hlut af aðgöngumiðunum, enda á útivelli, en þeirra áhorfendur fögnuðu innilega eftir magnaðan endasprett sinna manna sem skoruðu síðustu fjögur mörk leiksins.

Þór og KA eru þar með bæði með fjögur stig eftir þrjár umferðir og sitja í fjórða og fimmta sætinu eftir leiki kvöldsins. Haukar eru með sex stig, FH fimm og Fram fjögur stig í þremur efstu sætunum en Framarar eru taplausir eins og Haukar og eiga eftir að spila í umferðinni.

KA-mönnum tókst ekki að fylgja eftir óskabyrjun sinni í mótinu þar sem þeir höfðu unnið fyrstu tvo leiki sína, báða á útivelli.

Stefnir í fleiri svona leiki

KA-heimilið var orðið fullt löngu fyrir leik enda er ekki um venjulegan deildarleik að ræða þegar þessi lið mætast. Þetta er annað árið í röð sem þau leika bæði í úrvalsdeildinni og miðað við leikinn í kvöld, og spár fyrir veturinn ætti ekki að vera nein hætta á öðru en að þau eigi eftir að mætast þar oftar á næstu misserum.

Daði Jónsson fyrirliði og Eyþór Nói Tryggvason komu inn í hópinn hjá KA frá síðasta leik, gegn Víkingi, en Logi Gautason var ekki með. Þetta var fyrsti leikur Daða á tímabilinu en hann missti af fyrstu tveimur leikjunum. Þór var með óbreyttan sextán manna hóp frá sigrinum gegn HK í annari umferð.

Frábær byrjun KA

KA byrjaði leikinn af gríðarlegum krafti og stemningu og eftir níu mínútur stóð 7-2 fyrir þá gulu og bláu. Ágúst Elí Björgvinsson lokaði markinu með baráttuglaða vörn fyrir framan sig og varði sex af fyrstu sjö skotum Þórsara á þessum kafla. Hávaðinn í húsinu var eflaust nálægt því að vera yfir hættumörkum og þakið nánast að rifna af eftir hvert mark og markvörslu.

Þórsarar virtust slegnir út af laginu en þeir voru tiltölulega fljótir að ná vopnum sínum eftir að Daniel Birkelund þjálfari hafði tekið leikhlé og endurstillt sína menn. Það tókst glimrandi vel hjá honum því Þórsarar höfðu jafnað metin eftir næstu níu mínútur, 9-9, og eftir það var jafnt á öllum tölum í fyrri hálfleik.

Þór komst tvisvar yfir í hálfleiknum, fyrst 11-10 og síðan skoraði Jóhann Geir Sævarsson fyrir þá úr hraðaupphlaupi þegar 15 sekúndur voru eftir en Bjarni Ólafur Valdimarsson náði að nýta þann litla tíma sem eftir var til að kvitta fyrir með marki fyrir KA og staðan var 16-16 í hálfleik.

Áfall hjá Þórsurum

Þegar seinni hálfleikur hófst var komið að Þórsurum að byrja með látum. KA skoraði reyndar fyrst en svo komust Þórsarar í 21-18 með flottum kafla, vopnaðir svipaðri stemningu og ríkti hjá KA í byrjun leiks, og stuðningsmenn þeirra hvítu og rauðu í einu horni KA-heimilisins voru heldur betur með á nótunum.

Þórsarar urðu síðan fyrir miklu áfalli á níundu mínútu síðari hálfleiks þegar Dananum öfluga Bertram Simonsen gert að fara snemma í sturtu með rautt spjald vegna brots. Hann er lykilmaður í sóknarleik þeirra og á eflaust eftir að verða liðinu enn mikilvægari þegar líður á veturinn.

Arnór Ísak Haddsson tók leikinn nánast í sínar hendur á þessum kafla þegar hann skoraði hvert markið á fætur öðru og KA var komið yfir, 24-23, þegar tólf mínútur voru liðnar af hálfleiknum.

En rétt eins og Þórsarar misstu lykilmann snemma af velli í síðasta leik þá réðu þeir við að missa Simonsen sem hafði verið þeirra besti maður fram að rauða spjaldinu. Þeir eru vel mannaðir eftir að hafa fengið fjóra Dani í sumar og landi hans William Skovager tók við keflinu og var lykilmaður liðsins í vörn og sókn það sem eftir lifði leiks.

Oddur mikilvægur í lokin

Spennan hélst sú sama, jafnt á öllum tölum frá 22-22 til 31-31. En þá kom til sögunnar sá Dani sem minnst hafði komið sögu hjá Þór fram að þessu, vinstri hornamaðurinn Oliver Christensen. Hann krækti í vítakast og skoraði úr því, og úr öðru slíku í kjölfarið. Staðan var skyndilega 33-31 fyrir Þór og tvær mínútur eftir. Hinn þrautreyndi Oddur Gretarsson sigldi svo sigrinum heim með því að skora 34. markið þegar 50 sekúndur voru eftir og gefa svo stoðsendingu á Mikkel Jensen sem innsiglaði sigurinn.

Miklu meiri breidd hjá Þór

Miðað við þessa frammistöðu eru Þórsarar til alls líklegir í vetur og verða eflaust öllum erfiðir. Danska viðbótin gerir útslagið með það, í fyrra skorti Þórsara breidd sem núna er fyrir hendi. Danirnir fjórir skoruðu 18 af 35 mörkum liðsins og þó var Simonsen í stúkunni síðustu 20 mínútur leiksins. Brynjar Hólm Grétarsson, Hafþór Már Vignisson og Oddur Gretarsson eru sjóaðir leikmenn sem núna fá meiri hvíld en áður og hornamaðurinn Hákon Ingi Halldórsson byrjar tímabilið vel með sex mörk að meðaltali í leik til þessa. Markvörðurinn Nikola Radovanovic var lengi í gang og varði níu skot gegn fjórtán hjá markvörðum KA en var á réttum stað á réttum augnablikum.

Ekkert svíður sárar

KA-menn þurfa að skoða vel hvað fór úrskeiðis hjá þeim í leik þar sem þeir virtust mun sterkari í byrjun og voru aftur komnir með meðbyr í seinni hálfleiknum en misstu svo tökin á lokasprettinum. Liðið er vel skipað og með fjölbreyttan hóp leikmanna sem sýndu á köflum frábær sóknartilþrif. Arnór Ísak Haddsson átti sérstaklega góðan síðari hálfleik þar sem hann virtist á góðri leið með að snúa leiknum KA í hag. Fyrir KA er mikill fengur að hafa endurheimt Dag Árna Heimisson og þeir Ágúst Elí Björgvinsson og Bruno Bernat mynda öflugt markvarðapar.

En að þessu sinni urðu KA-menn undir í hasarnum og stemningunni þegar mest á reyndi og á þeim bænum svíður ekkert sárar en að horfa upp á Þórsara fagna á þeirra eigin heimavelli. Þeir eru án efa strax búnir að merkja við 22. nóvember á dagatalinu en þá mætast liðin í seinni leik tímabilsins í Íþróttahöllinni, heimavelli Þórsara.

Mörk KA: Arnór Ísak Haddsson 8 (þar af 1 víti), Dagur Árni Heimisson 5 (þar af 2 víti), Bjarni Ófeigur Valdimarsson 5, Morten Linder 4, Einar Birgir Stefánsson 2, Andri Freyr Friðriksson 2, Jens Bragi Bergþórsson 2, Dagur Gautason 1, Ágúst Elí Björgvinsson 1, Bruno Bernat 1.

Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 8 (29%), Bruno Bernat 6 (29%).

Mörk Þórs: William Skovager 6, Mikkel Jensen 5, Hákon Ingi Halldórsson 5 (þar af 2 víti), Bertram Simonsen 4, Brynjar Hólm Grétarsson 3, Oliver Christensen 3 (þar af 2 víti), Oddur Gretarsson 3, Hafþór Már Vignisson 2, Jóhann Geir Sævarsson 2, Þórður Tandri Ágústsson 2.

Varin skot: Nikola Radovanovic 9 (24%).