Fara í efni
Alfreð Gíslason

Sanngjarn sigur og KA upp í miðja deild

Færeyingurinn Jóan Símun Edmundsson, fyrir miðri mynd, tryggði KA þrjú dýrmæt stig með sigurmarkinu í Úlfarsárdal í dag. Mynd: Ármann Hinrik

Færeyski landsliðsmaðurinn Jóan Símun Edmundsson tryggði KA þrjú dýrmæt stig í dag með sigurmarkinu – 2:1 – gegn Fram í uppbótartíma á Lambhagavelli Framara í Úlfarsárdalnum í Reykjavík. Þetta er annar sigur KA-manna í röð og þeir eru nú komnir upp í miðja deild. Framarar tóku forystu á 19. mínútu leiksins en Ásgeir Sigurgeirsson jafnaði í uppbótartíma fyrri hálfleiks.

Sigur KA-manna var sanngjarn. Framarar voru reyndar heldur sterkari í fyrri hálfleik, sem einkenndist af því hve ótrúlega oft þurfti að stöðva leikinn vegna meiðsla. En KA-menn voru betri í seinni hálfleik, fengu þá nokkur úrvals færi, og hefðu mátt vera vonsviknir hefði Jóan ekki skoraði í lokin. Framarar voru reyndar einnig nálægt því að skora meira en KA-menn sköpuðu hættulegri færi.

Staðan er hnífjöfn frá fimmta sæti deildarinnar niður í það neðsta. Einn leikur er eftir í níundu umferð, Stjarnan tekur á móti KR í kvöld.

Fram er í fimmta sæti með 12 stig, KA og ÍBV – sem sigraði FH í Eyjum í dag – eru með 11 stig, KR, FH, Stjarnan og Afturelding eru með 10 stig og ÍA, sem vann Breiðablik 4:1 í Kópavogi í dag, er þrátt fyrir það enn neðst, með níu stig.

Bjarni Aðalsteinsson lék vel í dag og átti þátt í báðum mörkum KA. Mynd: Ármann Hinrik

  • 1:0 Róbert Hauksson fékk sendingu fram hægri kantinn, komst upp að endamörkum og sendi boltann inn á markteig þar sem Vuk Oskar Dimitrijevic hafði betur í baráttu við tvo varnarmenn og þrumaði í netið. Þetta var á 19. mínútu.
  • 1:1 KA jafnaði snemma í löngum uppbótartíma fyrri hálfleiks eftir einfalda en glæsilega sókn. Bjarni Aðalsteinsson fékk boltann hægra megin á miðjum vallarhelmingi Fram, löng sending hans yfir til vinstri rataði beint á Birgi Baldvinsson sem tók boltann á brjóstið eftir að hann skaust inn í vítateig, fór upp að endamörkum og sendi á Ásgeir Sigurgeirsson sem sendi boltinn upp í þaknetið.
  • 1:2 Aftur var Bjarni Aðalsteinsson á ferðinni; fékk boltann nokkru fyrir utan vítateig, vinstra megin á vellinum, sendi inn á miðjan vítateig þar sem Viðar Örn Kjartansson og tveir Framarar stukku upp saman, boltinn virtist fara af kolli Kennie Chopart í átt að markinu þar sem Jóan Símun Edmundsson og gerði út um leikinn.

KA-menn urðu fyrir þeim skakkaföllum í fyrri hálfleiknum að bæði Hrannar Björn Steingrímsson og Rodri urðu að fara af velli vegna meiðsla. Sjúkraþjálfari KA, hlaupagarpurinn Halldór Hermann Jónsson, var í óvenju stóru hlutverki í fyrri hálfleiknum enda óvenju mikið um hnjask; huga þurfti að Ívari Erni Árnasyni í tví- eða þrígang og Halldór Hermann skaust einnig inná til að líta á Jakob Snæ Árnason og Birgi Baldvinsson. Starfsbróðir Halldórs hjá Fram satt heldur ekki auðum höndum og uppbótartími fyrri hálfleiks var hvorki meira né minna en 12 mínútur!

Daninn Marcel Römer hefur komið vel inn í lið KA. Mynd: Ármann Hinrik

Lið KA er orðið heilsteyptara og betra en framan af móti; varnarleikurinn var mikill höfuðverkur í mörgum leikjum en liðsheildin verst nú mun betur. KA-menn héldu boltanum ágætlega í seinni hálfleik og náðu fínum samleiksköflum, Bjarni var mjög góður og ljóst að Daninn Marcel Römer er góður fengur. Margreyndur leikmaður og yfirvegaður sem hefur góð áhrif á liðið.

Sú breyting var gerð á KA-liðinu í dag að William Tönning stóð í markinu í fyrsta skipti. Steinþór Már Auðunsson glímir við smávægileg meiðsli og fékk frí í dag; fór ekki með liðinu suður. 

Leikskýrslan

Staðan í deildinni