Fara í efni
Alfreð Gíslason

Ögurstund í boltanum á fyrsta degi vetrar

Guðjón Ernir Hrafnkelsson leikmaður KA og Þórsarinn Einar Freyr Halldórsson eigast við á Greifavelli KA þegar Akureyrarliðin gerðu markalaust jafntefli í seinni viðureign hefðbundnu deildarkeppninnar í sumar. Mynd: Ármann Hinrik

FÓTBOLTI

Líklega hefur aldrei ríkt jafn mikil spenna á Akureyri á fyrsta degi vetrar og í dag. Ekki er það þó vegna upphafs vetrar per se, heldur lokaumferðar efstu deildar Íslandsmótsins í fótbolta, Bestu deildarinnar. Illu heilli fellur annaðhvort Akureyrarliðanna úr deildinni;  flautað verður til leiks kl. 14 þannig að um fjögurleytið liggur niðurstaðan fyrir.

KA fær ÍBV í heimsókn í dag en Þór mætir FH syðra. Sá leikur hefur verið færður á Þróttarvöll í Laugardal vegna vallaraðstæðna í Hafnarfirði. Þannig vill til að þetta eru fjögur neðstu liðin; skjáskotið af vef KSÍ sýnir stöðuna fyrir lokaumferðina.

Lið ÍBV er fallið og FH-ingar eru úr fallhættu. Þessir möguleikar eru í stöðinni:

  • Þór heldur sæti í deildinni með sigri á FH, óháð því hver úrslitin verði á Greifavelli KA.
  • Þór heldur sæti í deildinni ef bæði KA og Þór gera jafntefli.
  • KA heldur sæti í deildinni ef liðið vinnur ÍBV og Þór gerir jafntefli eða tapar fyrir FH. Ef KA vinnur og Þór gerir jafntefli verða Akureyrarliðin  jöfn að stigum en markamunurinn er KA mjög í hag; KA hefur gert 13 mörkum minna en liðið hefur fengið á sig en sambærileg tala er 31 hjá Þór.

  • Þór og FH gerðu 1:1 jafntefli í Kaplakrika 21. júní í sumar í fyrri leik liðanna í hinni hefðbundnu deildarkeppni. Þá gerði Einar Freyr Halldórsson mark Þórs úr vítaspyrnu. Síðari viðureign liðanna var á VÍS-velli Þórs 6. september og þá höfðu Þórsarar betur, unnu 1:0 með marki Þorra Ingólfssonar. Á mynd Ármanns Hinriks að ofan er boltinn á leið í netið eftir glæsilegt skot Þorra utan úr teig.

  • KA vann ÍBV 2:0 í fyrri viðureign liðanna á heimavelli sínum, Greifavellinum, 10. maí. Hallgrímur Mar Steingrímsson gerði fyrra markið og það síðara var sjálfsmark Felix Arnar Friðrikssonsar. Liðin gerðu svo 2:2 jafntefli í Eyjum í júlí þegar André Römer og Birgir Baldvinsson skoruðu fyrir KA. Á myndum Ármanns Hinriks að ofan, úr fyrri leiknum, má annars vegar sjá Eyjamann reyna hvað hann getur til að forða marki – sem honum tókst ekki – eftir glæsilegt skot Hallgríms Mars. Markvörður ÍBV kom út fyrir vítateig og náði boltanum á undan KA-manninum Oliver Heiðarssyni en spyrnti beint til Hallgríms sem var rétt fyrir framan miðju. Hann þakkaði fyrir sig með því að skora þaðan!

Best væri að Akureyri ætti tvö lið í efstu deild karla – alltaf. Það sýndi sig í sumar hve mikil stemning myndast í kringum þær viðureignir. En staðan er því miður eins og hún er; annað hvort liðið verður að gera sér að góðu að missa sæti í deild þeirra bestu.

Ógerningur er að spá um úrslit í leikjum dagsins. Þór getur unnið FH á útivelli og KA lagt ÍBV að velli á heimavelli, en allt eins gæti orðið jafntefli á báðum stöðum eða bæði lið tapað. Ekkert er gefið í þeim efnum og allar vangaveltur í raun eins og hver annnar samkvæmisleikur. Sannleikurinn er sá að allt getur gerst í íþróttum og því verða allir að bíða og vona. 

Góða skemmtun í dag, Akureyringar!