Fara í efni
Alfreð Gíslason

KA/Þór tekur á móti toppliði Vals í dag

Tinna Valgerður Gísladóttir þrumar að marki Valsara þegar þeir komu í heimsókn í KA-heimilið í desember. Mynd: Skapti Hallgrímsson.

Tveimur umferðum er ólokið í Olísdeild kvenna í handbolta. KA/Þór situr í 6. sætinu með 15 stig og á möguleika á að færa sig upp um eitt sæti ef allt gengur upp, en Fram er í 5. sætinu með 17 stig. Þröskuldurinn er hins vegar nokkuð hár því leikur dagsins er gegn toppliði Vals.

  • Olísdeild kvenna í handbolta
    KA-heimilið kl. 18:00
    KA/Þór - Valur
  • Útsending: Handboltapassinn í Sjónvarpi Símans
    Áskrift að rás eða stökum leikjum

KA/Þór hefur ekki riðið feitum hesti frá viðureignum sínum við Val í vetur. Sjö marka tap, 23-30, varð niðurstaðan á Akureyri í desember og 15 marka tap, 31-16 að Hlíðarenda í janúar. Þá mættust liðin einnig í undanúrslitum bikarkeppninnar á dögunum og þar höfðu Valskonur einnig betur, 29-22.

Ljóst er að KA/Þór mun mæta annaðhvort Haukum eða ÍR í fyrstu umferð úrslitakeppni Íslandsmótsins. Tvö efstu liðin bíða á meðan næstu fjögur eigast við, liðið í 3. sæti gegn 6. sætinu og 4. sætið gegn því fimmta. Haukar eru í 3. sæti með 23 stig og ÍR í 4. sæti með 22.