Fara í efni
Alfreð Gíslason

Handbolti: Þór tapaði gegn Víkingi syðra

Hafþór Már Vignisson fær hér óblíðar viðtölur hjá varnarmönnum KA í viðureign liðanna fyrir nokkrum dögum en Hafþór skoraði 5 mörk gegn Víkingi í gær. Mynd: Ármann Hinrik.

Þórsarar sóttu nýliða Víkings heim í efstu deild karla í handknattleik, Olísdeildinni, í gærkvöld. Eftir köflóttan leik voru það Víkingar sem unnu 36:31 sigur og nældu þar með í fyrstu stig sín í deildinni í vetur.

Víkingar byrjuðu leikinn betur og náðu snemma ágætu forskoti. Það var ekki fyrr en rúmar tíu mínútur voru til leikhlés að Þórsarar fóru að bíta frá sér og snúa leiknum sér í vil. Þá var staðan 15:10 Víkingum í vil en Þórsarar minnkuðu það forskot smám saman og komust yfir undir lok hálfleiksins. Staðan í leikhléi var 19:17 fyrir Þór.

Framan af seinni hálfleik héldu Þórsarar áfram á sömu braut og voru komnir með 23:19 forystu þegar seinni hálfleikur var fimm mínútna gamall. Þessi munur hélst framundir miðjan hálfleikinn en í stöðunni 26:22 fyrir Þór snerist leikurinn algjörlega. Þórsarar töpuðu áttum og gengu á lagið. Eftir að staðan var jöfn, 28:28, þegar um tíu mínútur voru til leiksloka tók Víkingur leikinn yfir og vann öruggan 36:31 sigur.

Tapið óvænt eftir góðan sigur gegn KA

Frekar óvænt úrslit í ljósi frammistöðu Þórs í síðasta leik gegn KA og að Víkingar voru búnir að tapa fyrstu þremur leikjum sínum. Næsta verkefni Þórs verður að heimsækja Valsmenn næstkomandi föstudagskvöld en Valsarar töpuðu einmitt sannfærandi gegn KA í gær og hafa eflaust lítinn áhuga á að endurtaka það gegn Þór.

Mörk Þórs: Bertram Simonsen 6, Brynjar Hólm Grétarsson 5, Hafþór Már Vignisson 5, Oliver Möller Christensen 5, (1 víti), Hákon Ingi Halldórsson 4 (2 víti), Mikkel Bak Scheumann Jensen 3, Jón Ólafur Þorsteinsson 1, William Skovager 1, Þórður Tandri Ágústsson 1.

Varin skot: Nikola Radovanovic 6, Tristan Ylur Guðjónsson 3.

Mörk Víkings: Ásgeir Snær Vignisson 8, Gunnar Hrafn Pálsson 7, Ísak Óli Eggertsson 7, Sigurður Páll Matthíasson 6 (1 víti), Jón Karl Einarsson 6, Halldór Ingi Óskarsson 1, Þorgeir Bjarki Davíðsson 1.

Varin skot: Rökkvi Pacheco Steinunnarson 13, Daði Bergmann Gunnarsson 2.