Emma Karólína og Axel verðlaunuð hjá Þór
Körfuknattleiksdeild Þórs hélt lokahóf sitt á laugardagskvöldið þar sem meðal annars voru veitt verðlaun og viðurkenningar. Emma Karólína Snæbjarnardóttir og Axel Arnarsson voru valin bestu leikmenn Þórsliðanna á tímabilinu.
Kvennalið Þórs endaði deildarkeppnina í 2. sæti deildarinnar, vann 15 leiki af 18. Aþena vann deildina og fór beint upp í Bónusdeildina, efstu deild Íslandsmótsins, en Hamar/Þór, Þór, Fjölnir og Selfoss fóru í umspil um annað laust sæti. Hamar/Þór endaði í næstneðsta sæti Bónusdeildarinnar, en hin þrjú í 2.-4. sæti 1. deildar. Þór mætti Fjölni í undanúrslitum umspilsins, en hafði ekki erindi sem erfiði, Fjölnir vann einvígið 3-0 og keppnistímabili Þórs þar með lokið. Einvígi Hamars/Þórs og Fjölnis um sæti í efstu deild hafið, Hamar/Þór vann fyrsta leikinn.
- Besti leikmaður: Emma Karólína Snæbjarnardóttir
- Efnilegasti leikmaður: Sigurlaug Eva Jónasdóttir
- Besti liðsfélaginn: Emilie Ravn
Emma Karólína var jafnframt valin leikmaður ársins í 1. deild kvenna, eins og áður hefur komið fram í fréttum.

Emma Karólína Snæbjarnardóttir, besti leikmaður kvennaliðs Þórs, ásamt formanni deildarinnar, Guðjóni Andra Gylfasyni.

Sigurlaug Eva Jónasdóttir, sem kom til félagsins frá Keflavík fyrir tímabilið, var valin efnilegust í kvennaliði Þórs.

Hin danska Emilie Ravn var valin besti liðsfélaginn í kvennaliði Þórs.
Karlaliðið í brasi
Karlalið Þórs endaði í hörkubaráttu við botn 1. deildarinnar, en náði að bjarga sér þó ekki hafi mátt miklu muna. Þórsliðið vann fjóra leiki af 22, en þrjú lið voru jöfn í þremur neðstu sætunum, öll með fjóra sigra. Þórsarar enduðu í 10. sætinu, efstir af þessum þremur liðum vegna árangurs í innbyrðis leikjum gegn þeim.
- Besti leikmaður: Axel Arnarsson
- Efnilegasti leikmaður: Pétur Cariglia
- Besti liðsfélaginn: Týr Óskar Pratiksson
- Viðurkenning fyrir 100 leiki í meistaraflokki: Páll Nóel Hjálmarsson og Smári Jónsson.

Axel Arnarsson, besti leikmaður karlaliðs Þórs, ásamt formanni deildarinnar.
Pétur Cariglia í leik með Þórsliðinu í vetur. Hann var valinn efnilegasti leikmaður meistaraflokks karla. Mynd: Guðjón Andri Gylfason.

Týr Óskar Pratiksson var valinn besti liðsfélaginn í karlaliði Þórs.

Smári Jónsson rauf 100 leikja múrinn með meistaraflokki á tímabilinu.

Páll Nóel Hjálmarsson rauf 100 leikja múrinn með meistaraflokki á tímabilinu.
Körfuknattleiksdeildin verðlaunaði einnig nokkra sjálfboðaliða úr hópi deildarinnar; Björn Halldór Sveinsson, Guðmund Ævar Oddsson, Helga Heiðar Jóhannesson, Kára Þorleifsson, Snæbjörn Kristjánsson og Stefán Smára.