Fara í efni
Alfreð Gíslason

Blak: KA tapaði gegn Hamri í deild og bikar

Hamarsmenn höfðu ástæðu til að fagna eftir að hafa lagt KA að velli bæði í bikanum og deildinni um helgina. Mynd: volleyball.is.

Karlalið KA í blaki brá undir sig betri fætinum og heimsótti Hamar í Hveragerði um helgina. Skemmst er frá því að segja að Hamar vann KA á laugardeginum í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar og vann líka viðureign liðanna í deildinni í gær, sunnudag.

Það er því ljóst að KA-menn verja ekki bikarmeistaratitil sinn en liðið er ríkjandi Kjörísbikarmeistari. HK vann fyrstu hrinuna í bikarleiknum 25:21 og svo þá næstu 25:22. Báðar hrinur voru þó býsna jafnar en hávörn heimaliðsins reyndist erfið hindrun fyrir KA. Leikurinn kláraðist svo með 25:19 sigri Hamars í þriðju hrinunni og öruggur 3:0 sigur í höfn.

Hamar jók forskotið í deildinni

Liðin eru bæði í hópi fjögurra liða sem hafa verið í einum hnapp í toppbaráttu Unbrokendeildarinnar í vetur og fyrir viðureign liðanna á sunnudag var Hamar í efsta sætinu. Það var því ljóst að liðið gæti tryggt stöðu sína á toppnum með sigri á KA og það gekk eftir. KA-menn komu þó sprækir til leiks, staðráðnir í að bæta upp fyrir tapið í bikarleiknum og unnu fyrstu hrinuna af miklu öryggi, 25:11. Gríðarleg barátta var í annarri hrinu, þar sem hvorugt liðið neitaði að gefast upp og hrinan fór í margfalda upphækkun. Það voru þó heimamenn sem náðu að knýja fram sigur í hrinunni að lokum, 32:30.

Í þriðju hrinu voru KA-menn með yfirhöndina lengi vel en í stöðunni 18:12 KA í hag hrukku heimamenn í gang. Þeir gerðu 11 stig í röð og breyttu stöðunni í 23:18 sér í vil. Hamar vann hrinuna að lokum 25:21 og leikinn þar með 3:1.

Með sigrinum náði Hamar fjögurra stiga forskoti í deildinni en Afturelding, KA og Reykjavíkur-Þróttarar koma þar á eftir í hnapp. Næsti leikur KA er næstkomandi miðvikudagskvöld í KA-heimilinu þegar Völsungur kemur í heimsókn.

Staðan í Unbrokendeild karla