Fara í efni
Alfreð Gíslason

Ásgeir semur áfram við KA – til hausts 2027

Mynd af heimasíðu KA.

Framherjinn Ásgeir Sigurgeirsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við knattspyrnudeild KA og er nú samningsbundinn félaginu út sumarið 2027. Ásgeir hefur leikið með KA síðan 2016 og nú 215 leiki að baki fyrir félagið.

„Ásgeir sem er 28 ára gamall kom á láni til KA fyrir sumarið 2016 frá norska liðinu Stabæk og sló heldur betur í gegn er KA tryggði sér loksins sæti í efstu deild með sannfærandi sigri í Inkasso deildinni. Ásgeir skoraði 8 mörk það sumarið og þar á meðal sigurmarkið gegn Selfyssingum sem tryggði úrvalsdeildarsætið,“ segir á heimasíðu KA þar sem greint er frá samningnum í dag.

Í kjölfarið gekk Ásgeir endanlega til liðs við KA og hefur verið burðarás í liðinu síðan. Hann er nú einn leikjahæsti leikmaður í sögu félagsins en hann hefur leikið alls 215 leiki fyrir KA í Íslandsmóti, bikarkeppni og Evrópukeppni, og gert alls 55 mörk.

„Í sumar hefur hann tekið þátt í öllum tíu leikjum liðsins í Bestu deildinni auk leiksins í Meistarakeppni KSÍ og gert í þeim leikjum fimm mörk. Á sínum yngri árum lék Geiri 18 landsleiki fyrir yngrilandslið Íslands og gerði fjögur mörk,“ segir í tilkynningunni á vef KA.

„Ekki nóg með að vera gríðarlega öflugur leikmaður sem gefur sig ávallt allan í verkefnið að þá er Ásgeir mikill leiðtogi sem drífur liðsfélaga sína áfram. Það er því ákaflega sterkt að hann sé búinn að framlengja samning sinn og að við munum áfram njóta krafta hans næstu árin.“