Fara í efni
Aldís Kara Bergsdóttir

Tvö Íslandsmet Bergs á HM í lyftingum í Kína

Fyrra Íslandsmetið! Bergur Sverrisson snarar 135 kg í þriðju lyftu í morgun og setti þar með Íslandsmet í 85 kg flokki. Mynd af vef Lyftingasambands Íslands.

KA-maðurinn Bergur Sverrisson setti tvö Íslandsmet á heimsmeistaramótinu í ólympískum lyftingum sem stendur yfir í Kína. Bergur, sem keppti í 85 kg flokki í morgun, setti Íslandsmet í snörun – 135 kg – og samanlögðu – 293 kg.

Á vef Lyftingasambands Ísland kemur fram að Bergur keppti léttari en áður „og ánægjulegt að hann hafi náð stöðugri og öflugri frammistöðu,“ segir þar. „Hann jafnaði árangur sinn frá heimsmeistaramótinu í fyrra, þá í gamla 88 kg flokknum. Besti árangur Bergs á stórmóti er frá Evrópumeistaramótinu 2025 þegar hann lyfti 302 kg (140/162).“

Keppendum er raðað eftir styrkleika í riðla, þeir bestu keppa í A-riðli en keppni hófst í D-riðli þar sem Bergur var á meðal keppenda. Lyftingasambandið lýsir gangi mála svo:

Seinna Íslandsmetið! 158 kg í jafnhendingu og þar með var Íslandsmet í samanlögðu staðreynd – 293 kg. Mynd af vef Lyftingasambands Íslands.

„Bergur opnaði á 130 kg í snörun sem flugu upp. Töluverð bið var áður en hann gat farið í lyftu tvö, sem truflaði aðeins taktinn hjá honum. Bergur missti næstu þyngd, 135 kg aðeins fram fyrir sig en safnaði kröftum og reif sömu þyngd upp í þriðju lyftu. Þetta var einnig Íslandsmet í 85 kg flokki karla. Að snörun lokinni var hann í 3. sæti af 9 keppendum.

Hann hóf jafnhendinguna á 153 kg sem fóru ekki upp en dómarar dæmdu lyftuna ekki gilda. Hann lét reyna við sömu þyngd sem flaug upp og mikil stemning í íslenska hópnum í stúkunni. Í þriðju lyftu setti hann 158 kg á stöngina og lét vaða. Upp fór stöngin og gleðin leyndi sér ekki hjá Bergi og íslenska hópnum.“

Bergur varð í 4. sæti af 10 keppendum í D-riðlinum og í heildina í 36. sæti af 41 keppanda í þyngdarflokknum að því er segir á vef RÚV.