Fara í efni
Aldís Kara Bergsdóttir

Þórsarar leika gegn Njarðvíkingum syðra

Aron Ingi Magnússon, Clement Bayiha og samherjar þeirra í Þórsliðinu sækja Njarðvíkinga heim í dag. Bayiha gerði mark Þórs í 1:1 jafntefli gegn ÍR í síðustu umferð. Myndir: Ármann Hinrik

Þórsarar heimsækja Njarðvíkinga í dag, þegar áttundu umferð næst efstu deildar karla í knattspyrnu lýkur. Flautað verður til leiks kl. 16:00. Þrír leikir fóru fram í gær og ÍR-ingar er á toppi Lengjudeildarinnar.

Með sigri í dag gæti Þórsliðið komist upp að hlið HK í 2.-3. sæti en fagni Njarðvíkingar hins vegar sigri fara þeir tveimur stigum upp fyrir HK og yrðu tveimur stigum á eftir ÍR-ingum.

Þór gerði 1:1 jafntefli við ÍR í Boganum í síðustu umferð á sama tíma og Njarðvík gerði 2:2 jafntefli við Þrótt á útivelli.

  • Lengjudeild karla í knattspyrnu
    JBÓ völlurinn í Njarðvík 16:00
    Njarðvík - Þór

Þrír leikir voru í gær:

  • Fylkir - Grindavík 1:1
  • HK - Fjölnir 3:0
  • ÍR - Leiknir 1:0

Staða efstu liða, leikafjöldi, stig, markatala:

  • ÍR 8 – 18 (+8)
  • HK 8 – 14 (+7)
  • Njarðvík 7 – 13 (+10)
  • Grindavík 7 – 11 (+5)
  • Þór 7 – 11 (+3)
  • og Þróttur 7 – 11 (+2)
  • Keflavík 6 –10 (+6)

Staðan í deildinni