Fara í efni
Aldís Kara Bergsdóttir

Þór sendi ÍBV niður og berst nú við KA

Christian „Greko“ Jakobsen fagnar marki sínu eftir hálftíma leik í dag; markinu sem tryggði Þórsurum þrjú lífsnauðsynleg stig í botnbaráttu Bestu deildarinnar. Ari i Haraldstovu, markvörður ÍBV, er að vonum vonsvikinn en ekki fer á milli mála með hvoru liðinu boltastrákurinn heldur! Myndir: Skapti Hallgrímsson

Þórsarar sendu ÍBV niður í 1. deild karla í fótbolta í dag með því að vinna verðskuldaðan sigur í fallslag liðanna í Bestu deildinni á Þórsvellinum, 1-0, þar sem Christian Jakobsen skoraði sigurmarkið eftir hálftíma leik.

KA vann Stjörnuna á sama tíma, 3-0 í Garðabæ, og þar sem FH vann Val 5-3 á Hlíðarenda stendur fallslagurinn í tveimur síðustu umferðunum á milli KA og Þórs. Annað Akureyrarliðanna mun fylgja Eyjamönnum niður en KA er með 26 stig og á eftir að leika við Val á útivelli og ÍBV á heimavelli og Þór er með 24 stig og á eftir heimaleik gegn Stjörnunni og útileik gegn FH.

ÍBV situr eftir með 19 stig á botninum en FH-ingar eru sloppnir úr fallhættu þó þeir séu aðeins sex stigum á undan Þór, með 30 stig, vegna þess hve mikill munur er á markatölu liðanna.

Aron Birkir Stefánsson markvörður Þórs og Aron Lucas Vokes sóknarmaður ÍBV rákust nokkuð harkalega saman utan vítateigs Þórsara. á 19. mín. Ekkert var dæmt en báðir þurftu leikmennirnir talsverða aðhlynningu.

Miðverðirnir í aðalhlutverkum

Baráttan og vinnusemin færðu Þórsurum sinn sjöunda sigur í deildinni í ár, þriðja 1-0 sigurinn í síðustu fimm leikjunum, og þeir voru betra liðið á vellinum í dag. Voru lengst af nær því að bæta við marki en Eyjamenn að jafna metin, enda þótt ÍBV hefði sótt talsvert að marki þeirra eftir því sem leið á seinni hálfleikinn.

Miðverðir Þórs voru menn leiksins í dag, Gyrðir Hrafn Guðbrandsson og Ásbjörn Líndal Arnarsson áttu báðir virkilega flottan leik og segja má að þeir hafi ekki hleypt ÍBV í eitt einasta dauðafæri. Gyrðir hefur reynst Þórsliðinu sannkallaður happafengur en fimm af sjö sigrum liðsins á tímabilinu hafa unnist síðan hann kom norður sem lánsmaður frá KR um miðjan júlí.

Ungt byrjunarlið

Einar Freyr Halldórsson og Kevin Vazquez réðu ferðinni á miðjunni ásamt Bjarna Guðjóni Brynjólfssyni og heilt yfir hafði Þórsliðið góð tök á Eyjamönnum frá fyrstu mínútu.

Með þeim Einari, Ásbirni, Sverri Páli Ingasyni og Þorra Ingólfssyni var Þór með fjóra stráka á 2. flokksaldri í byrjunarliðinu sem er sjaldséð í Bestu deildinni, hvað þá í leik sem skiptir öllu máli í baráttunni fyrir lífi sínu meðal þeirra bestu og þetta segir sitt um þann efnivið sem er til staðar í Þorpinu.

Fjórir strákar á 2. flokksaldri voru í byrjunarliði Þórs – „sjaldséð í Bestu deildinni, hvað þá í leik sem skiptir öllu máli í baráttunni fyrir lífi sínu meðal þeirra bestu,“ segir Víðir Sigurðsson í umfjöllun um leikinn. Þarna eru þeir allir; Einar Freyr Halldórsson lengst til vinstri, þá Sverrir Páll Ingason, Þorri Ingólfsson er fyrir miðri mynd og Ásbjörn Líndal lengst til hægri af þeim hvítklæddu.

Þrjár breytingar frá KA-leiknum

Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Þórs gerði þrjár breytingar á byrjunarliðinu frá síðasta leik sem var ósigurinn gegn KA. Þeir Yann Affi, Vilhelm B. Ottósson og Sigfús Fannar Gunnarsson voru ekki í hópnum, Affi var í leikbanni, en í liðið í þeirra stað komu Sverrir Páll, Ásbjörn Líndal og Bjarni Guðjón.

Af Eyjamönnum var helst að frétta að varnarmaðurinn öflugi Sigurður Magnússon sneri aftur til leiks eftir að hafa misst af þremur síðustu leikjum þeirra.

Mættur á fornar slóðir

Aleksandar Linta þjálfari Eyjamanna var mættur á fornar slóðir en hann lék með Þór í þrjú ár, 2008 til 2011, og lék sína síðustu leiki í efstu deild með Þórsliðinu árið 2011.

Þórsarar hófu leikinn eins og oft áður af miklum krafti og pressuðu Eyjamenn vel. Þorri Ingólfsson fékk fyrsta marktækifærið á 11. mínútu en Ari í Haraldsstovu, færeyski markvörðurinn hjá ÍBV, varði skot hans örugglega. Aftur var hætta við Eyjamarkið á 15. mínútu þegar Kristófer Kristinsson skaut í varnarmann og í horn úr vítateignum.

Harkalegur árekstur

Umdeilt atvik átti sér stað á 19. mínútu þegar Aron Birkir Stefánsson markvörður Þórs og Aron Lucas Vokes sóknarmaður ÍBV keyrðu saman utan vítateigs Þórsara. Vilhjálmur Alvar dómari var nærstaddur og veifaði leikinn strax áfram, gaf til kynna að ekkert brot hefði átt sér stað, en báðir leikmennirnir þurftu talsverða aðhlynningu.

Christian „Greko“ Jakobsen, fyrir miðri mynd, og fleiri fagna sigurmarki Danans í dag.

Christian Jakobsen fékk síðan dauðafæri á 30. mínútu þegar hann sneri skemmtilega á varnarmann ÍBV rétt utan markteigs og skaut en Ari markvörður varði með fótunum. Boltinn hrökk út á vinstri kant þar sem Ágúst Eðvald Hlynsson sendi hann inn á markteiginn á ný og þar var Christian á undan Ara og sneiddi boltann viðstöðulaust framhjá honum í netið – 1-0 fyrir Þór!

ÍBV fékk sitt fyrsta hættulega færi á 40. mínútu þegar Róbert Elís Hlynsson átti skalla eftir hornspyrnu – Aron Birkir markvörður var aðþrengdur, og auk þess hálf haltur ennþá eftir áreksturinn við nafna sinn, en náði að slá boltann frá.

Engu munaði að Gyrðir Hrafn Guðbrandsson kæmi Þór í 2-0 á 44. mínútu þegar hann átti hörkuskalla í þverslá af stuttu færi eftir hornspyrnu Einars Freys frá vinstri.

Staðan var því 1-0 fyrir Þór í hálfleik. Á sama tíma var KA með 2-0 forystu gegn Stjörnunni í Garðabæ og Eyjamenn voru því á leið niður í 1. deild miðað við stöðuna. KA væri þá með 26 stig, Þór 24 og ÍBV 19 fyrir tvær síðustu umferðirnar.

Gyrðir Hrafn Guðbrandsson skallar í þverslá ÍBV-marksins rétt fyrir lok fyrri hálfleiks eftir hornspyrnu Einars Freys Halldórssonar. 

Sluppu með skrekkinn

Þórsarar sluppu með skrekkinn þegar 58 sekúndur voru liðnar af síðari hálfleik. Mattias Edeland skallaði þá boltann snyrtilega í mark þeirra en Vilhjálmur Alvar taldi að hann hefði ýtt við Sverri Páli Ingasyni áður en hann tók við boltanum og dæmdi aukaspyrnu, við litla kátínu Eyjamanna.

Strax í næstu sókn Þórs var hins vegar Sigurður Magnússon miðvörður ÍBV stálheppinn að fá aðeins gula spjaldið þegar hann gaf Christian Jakobsen harkalegt olnbogaskot í hálsinn.

Eyjamenn sóttu í sig veðrið þegar leið á seinni hálfleikinn, enda dugði þeim lengur ekkert annað en sigur til að eiga von um að halda sér í deildinni. Boltinn hafnaði aftur í Þórsmarkinu á 71. mínútu en Milan Tomic var augljóslega rangstæður.

Þór fékk fleiri færi

Christian Jakobsen hefði hins vegar nánast getað gert út um leikinn tveimur mínútum síðar eftir flotta skyndisókn Þórs og fyrirgjöf Einars Freys frá vinstri en Daninn sópaði boltanum viðstöðulaust yfir mark ÍBV af stuttu færi.

Fannar Daði Malmquist Gíslason kom inn á sem varamaður á 75. mínútu og engu munaði að hann skoraði með fyrstu snertingunni þegar hann skallaði framhjá Eyjamarkinu af markteig eftir góðan sprett Þorra Ingólfssonar og sendingu frá hægri.

Sigurður Heiðar henti inn á tveimur varnarmönnum undir lokin, Ragnari Óla Ragnarssyni og Birgi Ómari Hlynssyni, til að verja forskotið á lokamínútunum. Síðasta hálmstrá Eyjamanna var hornspyrna í lok uppbótartímans en þegar Aron Birkir varði skalla Mattiasar Edeland auðveldlega voru örlög ÍBV endanlega ráðin.

Eyjamenn gengu fallnir af velli en Þórsarar uppskáru þrjú verðskulduð stig og geta haldið áfram að berjast fyrir lífi sínu þegar þeir taka á móti Stjörnunni um næstu helgi.

Lið Þórs: Aron Birkir Stefánsson – Sverrir Páll Ingason (Birgir Ómar Hlynsson 88.), Gyrðir Hrafn Guðbrandsson, Ásbjörn Líndal Arnarsson, Kristófer Kristjánsson – Bjarni Guðjón Brynjólfsson (Fannar Daði Malmquist Gíslason 76.), Kevin Vazquez, Einar Freyr Halldórsson, Þorri Ingólfsson (Atli Sigurjónsson 81.) – Ágúst Eðvald Hlynsson (Ragnar Óli Ragnarsson 88.), Christian Jakobsen (Victor Bertomeu 81.)

Leikskýrslan á vef KSÍ

Staðan í neðri hluta deildarinnar

Leikir Þórs sem eftir eru:

  • Laugardag 17. október
    Þór – Stjarnan
  • Laugardag 24. október
    FH – Þór