Aldís Kara Bergsdóttir
Þór tekur á móti B-liði Keflavíkur í kvöld
17.11.2026 kl. 06:00
Sigurlaug Eva Jónasdóttir í leik með Þór gegn KV fyrr í vetur og Elfa Falsdóttir leikmaður KV. Báðar koma þær upphaflega frá Keflavík. Mynd: Guðjón Andri Gylfason.
Í næstefstu deild Íslandsmóts kvenna í körfubolta, Bæjarins beztu deildinni eins og hún nefnist, tefla tvö Suðurnesjafélög fram b-liðum sínum. Kvennalið Þórs tekur á móti öðru þeirra, B-liði Keflvíkinga, í kvöld.
Þór hefur unnið fjóra af fimm fyrstu leikjum sínum og er í þriðja sæti deildarinnar á eftir Þór úr Þorlákshöfn og Selfossi. Þessi þrjú efstu lið hafa öll tapað einum leik, en Þór Þ. hefur spilað sjö leiki, Selfoss sex og Þór A. fimm leiki. Keflavík b kemur fast á hæla þeirra með þrjá sigra úr fimm fyrstu leikjum sínum.
- Körfubolti
Bæjarins beztu deild kvenna, 7. umferð
Íþróttahöllin á Akureyri kl. 19:30
Þór - Keflavík b