Blaðamaður án orða og Spegill þjóðar
Manstu eftir myndinni af Vigdísi Finnbogadóttur hoppa í parís vorið 1980? Af Helga Hóseassyni sletta skyrinu við þingsetningu haustið 1972? Eða af Bill Clinton fá sér pylsu í Bæjarins beztu árið 2004?
Þeir sem komnir eru til vits og ára, eins og það er stundum kallað, svara þessum spurningum mjög líklega játandi. Þeim sömu er ef til vill einnig í fersku minni fréttamynd þar sem allir fulltrúar landsfundar Sjálfstæðisflokksins haustið 1981 standa upp og hylla formann flokksins, Geir Hallgrímsson, að lokinni setningarræðu hans – allir nema tveir reyndar, og það gerir myndina frábæra; Gunnar Thoroddsen, þá forsætisráðherra í óþökk eigin flokks, og Vala eiginkona hans, sátu sem fastast.

Vigdís Finnbogadóttir hoppar í parís á Ólafsvík í aðdraganda heimssögulegra forsetakosninga 1980; Vigdís varð þá fyrsta konan í heiminum sem kosin var forseti í almennum kosningum. Gunnar V. Andrésson segir frá myndinni í gær.
Allar eiga þessar eftirminnilegu myndir eitt sameiginlegt: Þær voru á sínum merktar með skammstöfuninni GVA.
Gunnar V. Andréssonar er einn kunnasti blaðaljósmyndari Íslendinga. Hann starfaði á Tímanum, Vísi, DV, Fréttablaðinu og visir.is og ferillinn spannaði hálfa öld.
Bókin Spegill þjóðar – Fréttamyndir í fimmtíu ár og sagan á bak við þær kom út á síðasta ári. Þar er úrval mynda Gunnars og texti samstarfsmanns hans forðum tíð, Sigmundar Ernis Rúnarssonar.
Sá sem þetta skrifar hefur margoft skynjað að fátt gleður mannskepnuna jafn mikið og gömul ljósmynd. Þess vegna er ástæða til að vekja athygli á sýningunni Spegill þjóðar sem opnuð var í gær Minjasafninu á Akureyri, þar sem sjá má brot mynda Gunnars. Sýningin er samstarfsverkefni Minjasafnsins og Borgarsögusafns Reykjavíkur.

Gunnar V. Andrésson segir Heiðu Björgu Hilmisdóttur borgarstjóra og Ásthildi Sturludóttur bæjarstjóra frá myndum á sýningunni í gær.
Eftir að Akureyringurinn Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri í Reykjavík og Ásthildur Sturludóttir, „borgarstjóri“ á Akureyri, opnuðu sýninguna sögðu Sigmundur og Gunnar sögu nokkurra mynda úr bókinni við góðar undirtektir og að því loknu gleymdu viðstaddir sér við að skoða sýninguna; hurfu jafnvel áratugi aftur í tímann á svipstundu.
Það er auðvelt að gleyma sér á sýningu GVA. Ekki gleyma að gera þér ferð á Minjasafnið ...

Vornótt í Skagafirði – Ein frægasta ljósmynd Gunnars. Myndin er tekin haustið 1980, en fékkst ekki birt í Vísi fyrr en komið var fram á nýtt ár. „Sá háttprúði vinur okkar, Ólafur heitinn Ragnarsson, ritstjóri blaðsins, taldi hana full til grófa, en í vetrarfríi hans í janúar stálust undirmenn Ólafs til að birta djásnið,“ sagði Sigmundur Ernir í gær.

Sigmundur Ernir og Sverrir Páll Erlendsson fv. kennari við Menntaskólann á Akureyri.

Ánægðir með samstarfið! Haraldur Þór Egilsson, safnstjóri Minjasafnsins á Akureyri og Guðbrandur Benediktsson safnstjóri Borgarsöguafns Reykjavíkur.


Fyrirmynd íslenskra kvenna! Borgarstjórarnir, Ásthildur Sturludóttir og Heiða Björg Hilmarsdóttir við myndir Gunnars V. Andréssonar af Vigdísi Finnbogadóttur frá 1980, þegar hún var kjörin forseti Íslands.