Samkomusvæði, íbúðir, útivist, verslun og þjónusta
Í vinningstillögu samkeppni um skipulag Akureyrarvallar og nágrennis er gert ráð fyrir almennu útivistarsvæði, íbúðabyggð og verslun- og þjónustu. Úrslit í samkeppninni voru tilkynnt í dag. „Svæðið verði lifandi og grænt miðbæjarsvæði, sem tengi helstu verslunar- og þjónustusvæði bæjarins auk þess að verða miðlægur samkomustaður fyrir útivist og samveru,“ segir í tillögunni.
Hlaupabraut og skautasvell
Höfundar tillögunnar, feðgarnir Kristján Ásgeirsson og Óli Geir Kristjánsson hjá Alark arkitektum í Kópavogi, sögðust í samtali við akureyri.net vilja horfa til fortíðar og tengja við fyrri starfsemi á svæðinu og þess vegna er í tillögu þeirra gert ráð fyrir hlaupabraut nokkurn veginn þar sem hún var í eina tíð, vestast á svæðinu við áhorfendastúkuna og brekkurnar. Vert er að geta þess að þeir gera ráð fyrir að hlaupabrautin nái alveg út að Glerártorgi og suður að Ráðhústorgi. Þeir gera einnig ráð fyrir tjörn og nefna möguleikann á því að þar geti verið skautasvell. Sú var einmitt tíðin að skautasvell var gert á moldarvellinum austast á svæðinu, við Glerárgötu. Rætt verður við þá feðga síðar.

Höfundar sigurtillögunnar og dómnefndin, frá vinstri: Fríða Björg Eðvarðsdóttir sem sat í nefndinni fyrir hönd Félags íslenskra landslagsarkitekta, Borghildur Sturludóttir, fyrir hönd Arkitektafélags Íslands, Halla Björk Reynisdóttir bæjarfulltrúi og formaður dómnefndar, Óli Geir Kristjánsson arkitekt, Kristján Ásgeirsson arkitekt, Sindri S. Kristjánsson bæjarfulltrúi og Hlynur Jóhannsson bæjarfulltrúi. Mynd: Skapti Hallgrímsson
- Hér að neðan eru myndir og texti úr vinningstillögunni.

Aðkoman úr suðri verður kunnugleg samkvæmt vinningstillögunni! „Séð frá Hólabraut - Horft í átt að gamla hliðinu sem fær að þjóna sínum tilgangi áfram. Fjölbýlishús við Smáragötu til hægri,“ segir með þessari mynd í vinningstillögunni.

- Gert er ráð fyrir tveimur húsaklösum, Austurklasa og Vesturklasa, á sjálfu íþróttavallarsvæðinu auk stakstæðra viðbótar íbúðahúsalóða við Brekkugötu og Hólabraut.
- Austurklasinn er staðsettur utan fyrrverandi hlaupabrautar á horni Smáragötu og Glerárgötu en Vesturklasinn er staðsettur innan fyrrverandi hlaupabrautar með aðkomu frá Glerárgötu. Staðsetning og form húsaklasanna tekur einnig mið af sólar – og vindgreiningu svæðisins.
- Gert er ráð fyrir 2-3 hæða húsum á uppbyggingarsvæðinu. Áætlað er að allt að 50-55 íbúðir verði í Vestur- og Austurklasa. Fjöldi íbúða í tvíbýlis/fjórbýlishúsum við Smáragötu og Hólabraut er 12 talsins og gert er ráð fyrir 3 einbýlishúsum við Brekkugötu. Mögulegt er að bæta við 3 einbýlishúsalóðum við Brekkugötu. Heildarfjöldi íbúða á skipulagssvæðinu er áætlaður allt að 65-70.
- Á jarðhæðum Vesturklasa og hluta Austurklasa, mót Glerárgötu, er gert ráð fyrir lifandi starfsemi. Í vesturklasa teygir þjónustan sig inn að opnu grænu almenningssvæði mót suðvestri til þess að virkja það sem aðlaðandi og lifandi borgarrými. Í Austurklasa er gert ráð fyrir þjónusturými á jarðhæð þess hluta sem er hornréttur á Vesturklasann en nær ekki í gegn að inngarði, sem er ætlaður til sérnota íbúa klasans. Alls er gert ráð fyrir samtals 1460m2 þjónustufermetrum í þessum tveimur klösum.
- Gert er ráð fyrir hjólastæðum bæði fyrir íbúðahúsnæði sem og atvinnuhúsnæði svæðisins í samræmi við kröfur í keppnislýsingu. Það á við um bæði læst rými og opin sorpskýli eru staðsett í nálægð við bílastæði ofanjarðar.

Með þessari mynd segir í tillögunni: BYGGÐIN - Séð frá Glerárgötu sem fær nýtt hlutverk sem 1+1 bæjargata frá Kaupvangasstræti að Þórunnarstræti. Verslun og þjónusta á jarðhæðin.
Almenningssvæðið
- Svæðið austan hlaupabrautar að Vesturklasa sem og áhorfendabrekkusvæðið er opið almenningssvæði. Þar er gert ráð fyrir lítilli tjörn, úti veitingasvæði í tengslum við þjónusturými jarðhæðar, leiksvæði af ýmsum toga, æfingasvæði með tækjum, boltavelli og sviðsmannvirki á torgi gegnt áhorfendastúku og brekku.
- „Hlaupabrautarásinn“ nýtist sem hjólastígur og sem almennt göngu-og hlaupasvæði.
- Tjörnin skapar friðsæla umgjörð og nýtist á mismunandi hátt eftir árstíðum og veðri, hér er t.d. hægt að skauta á veturna, líkt og gert var forðum á svæðinu. Hún er einnig hluti blágrænna lausna sem settjörn.
- Undir sviðinu er gert ráð fyrir litlum sölubásum t.d. fyrir skautaleigu á veturna, kaffi/kakósölu ofl í þeim dúr.
- Sviðstorgið getur nýst sem markaðs- og eða matarvagnartorg um helgar og á góðviðrisdögum ásamt yfirdekkuðum boltavellinum. Gamla stúkan verði nýtt undir geymslur sem og salernisaðstöðu fyrir svæðið.

Bílastæði ofan- og neðanjarðar
- Gert er ráð fyrir vinkillaga bílastæðaplani með að- og frákeyrslu frá Glerárgötu fyrir 24 stæði. Einnig er gert ráð fyrir allt að 12 bílastæðum á horni Glerárgötu og Smáragötu. Samtals eru því 36 bílastæði ofanjarðar sem snúa að Glerárgötu, sem nýtast að hluta þjónusturýmum svæðisins og að hluta fyrir íbúana.
- Miðað við 1 stæði fyrir hverja 75 fermetra þurfa þjónusturýmin tæp 20 bílastæði þ.a. hin 16 nýtast íbúum og gestum þeirra. Auk þessara stæða eru 10 almenn stæði til viðbótar við Smáragötu.
- Alls er því gert ráð fyrir 46 stæðum ofanjarðar auk einkastæða á áætluðum einbýlis, tvíbýlis- og fjórbýlishúsalóðum við Hólabraut og Brekkugötu.
- Gert er ráð fyrir bílakjallara undir hvorum húsaklasa. Aðkoma að bílakjallara Vesturklasa er frá Glerárgötu en að Austurklasa frá Smáragötu. Fjöldi bílastæða í kjallara er samtals allt að 60. Mögulegt er að samtengja bílgeymslurnar.

Tengingar við nærumhverfið
- Tillagan gerir ráð fyrir góðum tengingum fyrir gangandi og hjólandi til og frá svæðinu. Aðal stofnstígur bæjarins liggur beint frá Ráðhústorgi í suðaustri eftir vestanverðri Túngötu, sem höfundar vinningstillögunnar leggja til að verði útfærð og innréttuð þannig að skil gangandi, hjólandi og akandi verði skýr og greið, þaðan eftir Hólabraut beint inn á svæði Akureyrarvallar inn um gamla hlið Akureyrarvallar, sem flyst um nokkra metra til norðurs.
- Þessi tenging öll fær yfirbragð hlaupabrautar og fær jafnframt breytt og vistvænna yfirborð. Stofnstígurinn tengist „Hlaupabrautarásnum“ og liggur þaðan yfir á Glerársvæðið í norðvestri fram hjá nýrri stoppistöð almenningsvagna við Glerárgötu, andspænis Eyrarvegi.
- Tenging við Oddeyrina er yfir Glerárgötu við Smáragötu yfir á Eiðsvöll. Tengistígur liggur frá Hofi eftir Glerárgötu að Eiðsvelli og þar yfir á hið breytta svæði Akureyrarvallar.
- Bein leið inn á vallarsvæðið er hugsuð frá Bókasafni Akureyrar niður brekkuna inn á hlaupabrautina.
- Í deiliskipulagi miðbæjar er gert ráð fyrir að Glerárgötu verði breytt í aðlaðandi bæjargötu frá Kaupvangsstræti að áætluðu hringtorgi við Grænugötu og Smáragötu, sem mynda mun aðkomuhlið að þessu breytta svæði Akureyrarvallar. Tillöguhöfundar leggja til að bæjargötubreyting þessi verði lengd enn frekar til norðurs að Glerártorgi við Þórunnarstræti, þannig að hið breytta svæði Akureyrarvallar tilheyri þessu nýja bæjargötuumhverfi og verði ásamt Glerárgötu, Pollinum og Hofi, órjúfanlegur hluti miðbæjarins, líkt og segir í greinargerð deiliskipulags miðbæjar.
- Lagt er til að hið margumrædda hús leigubílastöðvarinnar BSO verði flutt af núverandi stað yfir á þjónustulóðina á horni Hólabrautar og Gránufélagsgötu, í beinum tengslum við þennan sterka stofnæðarás á milli Ráðhússtorgs og Glerártorgs. Af því verður varla héðan af því Akureyrarbæjar hefur auglýst húsið til gjafar með því skilyrði að það verði fjarlægt af lóðinni við Strandgötu fyrir 15. júní, ella verði það rifið.