Fara í efni
Akureyrarvaka

Ragnar og Rúnar heiðursfélagar Þórs

Rúnar Steingrímsson, til vinstri, og Ragnar Sverrisson þegar þeir bættust í hóp heiðursfélaga Þórs. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Ragnar Sverrisson og Rúnar Steingrímsson voru sæmdir nafnbótinni heiðursfélagi Íþróttafélagsins Þórs á samkomu í félagsheimilinu Hamri á 110 ára afmæli félagsins, föstudaginn 6. júní. Við sama tilefni var fjöldi Þórsara sæmdur gull-, silfur- og bronsmerki félagsins. 

Fjallað er um heiðursfélagana tvo á heimasíðu Þórs í dag, þar sem vitnað er í ávarp Nóa Björnssonar, formanns félagsins.

  • Rúnar Steingrímsson – „Maðurinn á bak við tjöldin“

„Rúnar stundaði íþróttir á sínum yngri árum og fór alla leið upp í meistaraflokk í þeim báðum en vegna þrálátra meiðsla neyddist hann til að leggja skóna á hilluna. Rúnar fór ekki langt frá knattspyrnunni eftir meiðslin því hann reimaði á sig takkaskó, sem hentuðu dómara og hengdi dómaraflautu um háls sér og hóf farsælan feril, sem knattspyrnudómari og var þar um langt skeið í fremstu röð,“ sagði Nói. „Það þótti honum afbragðsleið til að halda tengslum við íþróttina og vera í góðum félagsskap, eins og hann komst að orði í viðtali við Skapta Hallgrímsson hjá Morgunblaðinu 27. febrúar 1999.“

Nói sagði Rúnar hafa verið og væri enn afar dugmikill í félagsmálum hjá Þór og síðast en ekki síst afar öflugur sjálfboðaliði. Hann hafi til fjölda ára sinnt hlutverki gæslumanns á knattspyrnu- og körfuboltaleikjum. „Á körfuboltaleikjum er hann hluti af stóru og kraftmiklu gengi, sem sér um að umgjörð og frágangur fyrir og eftir körfuboltaleiki þar er séð til þess að allt sé upp á 10. Þá hefur hann í áraraðir verið hluti af gengi góðra manna, sem keyra körfuboltaliðin og knattspyrnuliðin okkar í útileiki. Þegar kemur að vinnuverkefnum hvers konar þá er Rúnar fyrstur til að mæta en hann fer ekki fyrstur heim, svo mikið er víst.“

„Rúnar er góð fyrirmynd hinna fjölmörgu sjálfboðaliða og hvatning til allra, sem vilja leggja sitt af mörkum við að gera sínu félagi vel og um leið samfélaginu öllu,“ sagði Nói og bætti við um Rúnar mætti segja eins og marga aðra: „Maðurinn á bak við tjöldin.“

  • Ragnar Sverrisson – Kaupmaður og stór-Þórsari

„Ragnar Sverrisson kaupmaður og stór-Þórsari er maður, sem hefur ávallt látið verkin tala og við þá iðju hefur hann látið hendur standa fram úr ermum,“ sagði Nói. „Í ár eru um 70 ár síðan hann gerðist félagi í Þór, annað kom ekki til greina enda allt hans fólk sannir Þórsarar. Sem barn voru hverskyns knattleikir hans og félaga á Eyrinni daglegt brauð. En snemma varð handboltinn hans yndi en þá íþrótt stundaði hann af mikilli eljusemi og fór alla leið upp í meistaraflokk þar, sem sú göfuga íþrótt var stunduð í Rafveitu-skemmunni og síðar í íþrótta-skemmunni. Raggi var m.a. einn þeirra, sem skipuðu lið Þórs sem ávann sér rétt til keppni í 1. deild karla fyrst liða á Akureyri.“

Þegar synir Ragga fóru að stunda iðkun skíðaíþróttarinnar þá varð fjallið hans annað heimili, sagði Nói. Þar hafi hann unnið ásamt fleirum við allt sem viðkom æfingum og keppni hjá akureyrskum ungmennum. „Þar var hann í góðum hópi manna m.a. Þórsaranum Jóhanni Haukssyni og KA manninum Óðni Árnasyni. Einnig var Raggi var duglegur að fylgja drengjunum sínum eftir á þeirra knattspyrnuferli í unglingastarfi félagsins.“

Nói sagði að þegar Þór flutti í Þorpið og settist að þar sem félagið hefur nú fest rætur, hafi Ragnar unnið dag og nótt, með fjölda annarra sjálfboðaliða, við að koma svæðinu í nothæft horf og þegar bygging félagsheimilisins Hamars hófst 1987 hafi hann spilað stórt hlutverk við framkvæmdirnar.

Síðan sagði Nói: „Eftir að Hamar var byggður eða í kringum 1990 fannst Ragnari sem að íþróttafólki Þórs væri ekki gert nógu hátt undir höfði við val á íþróttafólki Þórs, sem því miður hafði ekki verið með reglulegum hætti. Þá tók okkar maður til sinna ráða og setti á fót nefnd sem skildi framvegis gera hlutina með sómasamlegum hætti. Raggi keypti stóran farandbikar handa íþróttamanni Þórs og eignarbikara fyrir íþróttafólks hverra deildar. Síðan hefur besta íþróttafólks hverju sinni verið heiðrað með þessum hætti með aðkomu Ragga.“

Gull, silfur og brons

Alls fengu 17 Þórsarar gullmerki félagsins á athöfninni, átta fengu silfurmerki og 70 hlutu bronsmerki. Á heimasíðu Þórs má sjá nöfn allra sem hlutu heiðursmerki og fjölda mynda frá samkomunni.

Fréttin á heimasíðu Þórs