Fara í efni
Akureyrarvaka

Besta reglan er að gefast aldrei upp!

KA-menn fögnuðu að vonum innilega þegar leiktíminn rann út í dag. Þeir voru skrefi á eftir gestunum úr Eyjum lengi vel en neituðu að gefast upp. Myndir: Skapti Hallgrímsson

KA sigraði ÍBV með eins marks mun í dag á heimavelli, 29:28, og liðin höfðu þar með sætaskipti í Olísdeildinni, efstu deild Íslandsmótsins í handbolta. KA er í fimmta sæti með 24 stig þegar þrjár umferðir eru eftir en ÍBV fór niður í sjötta sæti, hefur 23 stig.

Fjögur efstu liðin í deildinni tryggja sér heimaleikjarétt í átta liða úrslitakeppni um Íslandsmeistaratitilinn; fá fyrsta leik, og oddaleik ef með þarf, á heimavelli gegn liðum sem enduðu neðar. KA á góða möguleika á að ná þriðja eða fjórða sæti; Afturelding er með 25 stig og Haukar 26.

KA-menn voru án Bjarna Ófeigs Valdimarssonar og Mortens Linder í dag. Báðir eru meiddir; Linder fór úr axlarlið gegn Val á dögunum og enn er óljóst hvort hann verður með í undanúrslitaleik bikarkeppninnar gegn ÍR á fimmtudaginn. Meiðsli Bjarna Ófeigs eru hins vegar smávægileg og hann verður klár í slaginn í næsta leik.

Eyjamenn náðu forystu strax í upphafi og höfðu frumkvæðið lengi vel. Staðan var 15:13 fyrir ÍBV í hálfleik, munurinn jókst framan af seinni hálfleiknum og fimm mörkum munaði, 22:17, þegar 12 mín. voru liðnar. Þá snerist dæmið hins vegar við; KA-menn gerðu átta mörk en gestirnir tvö á rúmlega 10 mín. kafla. Staðan breyttist úr 17:22 í 25:24. Á sex mínútum gerðu KA-strákarnir fimm mörk í röð og breyttu stöðunni þá úr 20:24 í 25:24.

Lokasekúndurnar! Daníel Þór Ingason náði að lauma boltanum á línumanninn Garðar Sigurjónsson í blálokin en KA-vörnin neitaði að hleypa honum í færi; tók hraustlega á Eyjamanninum og aukakast var dæmt. Líklegast þótti að boltinn yrði gefinn á stórskyttuna Daníel Þór en Dagur Arnarsson fékk boltann og skot hans fór langt framhjá. 

Það var hornamaðurinn Giorgi Dikhaminjia sem jafnaði, 24:24, eftir hraðaupphlaup og Arnór Ísak Haddsson kom KA yfir í fyrsta skipti í leiknum, 25:24, með marki eftir gegnumbrot þegar sjö og hálf mínúta var eftir.

KA var tveimur mörkum yfir, 27:25, þegar fjórar og hálf mín. var eftir en þegar þrjár mín. lifðu leiks jafnaði Nökkvi Snær Óðinsson fyrir ÍBV, 28:28. Giorgi Dikhaminjia gerði 29. mark KA þegar tvær mín. voru eftir það og reyndist sigurmarkið.

Patrekur Stefánsson gat gulltryggt sigurinn þegar hann fékk dauðafæri 20 sek. fyrir leikslok en skot hans var varið, ÍBV átti því lokasóknina en tókst ekki að skora. Eyjamenn fengu aukakast þegar tvær sekúndur voru eftir, skot Dags Arnarssonar fór langt framhjá og fögnuðurinn var því gulur og blár að þessu sinni.

KA saknaði vitaskuld Bjarna Ófeigs og Morten Linde, tveggja markahæstu manna liðsins í vetur, en hinir sneru bökum saman, sýndu mikla seiglu og kláruðu verkefnið. KA-strákarnir mundu mikilvægastu reglu allra íþróttamanna, þegar komið er í baráttuna: að gefast aldrei upp. Það skilaði tveimur dýrmætum stigum í dag.

Mörk KA: Einar Rafn Eiðsson 9 (þar af 7 víti), Arnór Ísak Haddsson 6, Dagur Gautason 4, Giorgi Arvelodi Dikhaminjia 4, Einar Birgir Stefánsson 4, Magnús Dagur Jónatansson 1, Patrekur Stefánsson 1.
Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 15 – 34,9%.

Mörk ÍBV: Andri Erlingsson 7, Hákon Daði Styrmisson 7/2, Dagur Arnarsson 3, Daníel Þór Ingason 3, Elís Þór Aðalsteinsson 3, Sveinn José Rivera 3, Nökkvi Snær Óðinsson 2.
Varin skot: Petar Jokanovic 11 – 33,3% og Morgan Goði Garner 2 – 25%.

Tölfræði leiksins frá HBStatz

Staðan í deildinni

Leikirnir sem KA á eftir fram að úrslitakeppninni:

  • Stjarnan - KA
  • KA - FH
  • Þór - KA