Fara í efni
Akureyrarbær

Bæjarstjórn mótmælir breytingum á Loftbrú

Mynd: Þorgeir Baldursson

Bæjarstjórn Akureyrar mótmælir fyrirhuguðum breytingum á Loftbrú, lýsir yfir áhyggjum af þeim áhrifum sem þær kunna að hafa fyrir íbúa landsbyggðarinnar og skorar á stjórnvöld að endurskoða fyrirhugaðar breytingar. Tvær bókanir þar að lútandi voru samþykktar samhljóða á fundi bæjarstjórnar í dag.

Í báðum bókunum er nefnt hve Loftbrúin sé mikilvæg sem byggðajöfnunartæki; að hún tryggi íbúum landsbyggðarinnar betra aðgengi að ýmissi nauðsynlegri þjónustu. Breytingin felur í sér skerðingu á stuðningi, segir m.a. í fyrri bókuninni, sem Þórhallur Jónsson bæjarfulltrúi Akureyrarlistans lagði fram. „Það á ekki að vera dýrara að búa á landsbyggðinni vegna þess að nauðsynleg þjónusta er staðsett á höfuðborgarsvæðinu,“ segir þar.

  • LOFTBRÚ var tekin upp í september 2020 og veitir íbúum landsbyggðarinnar afslátt af sex flugleggjum innanlands á ári, til og frá höfuðborgarsvæðinu.
  • Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra tilkynnti í síðasta mánuði að í stað 40% afsláttar af fargjaldi yrði afsláttur föst krónutala frá næstu áramótum, 7.000 krónur á hvern fluglegg. Ráðherra hefur síðar tilkynnt að upphæðin verði hækkuð í 9.000 krónur.

Grundvallaratriði

„Fyrir okkur jafnaðarfólk er það grundvallaratriði að öllum landsmönnum sé tryggt jafnt og sanngjarnt aðgengi að þessum gæðum,“ segir í seinni bókuninni, frá bæjarfulltrúum Samfylkingarinnar, Sindra S. Kristjánssyni og Hönnu Dóru Markúsdóttur. Þau hvetja ráðherra til að falla frá hugmyndum um fasta krónutölu og „viðhalda núverandi fyrirkomulagi óbreyttu, nema fram komi tillögur sem raunverulega bæta og styrkja kerfið fyrir notendur þess jafnt sem ríkissjóð.“

Bókun Þórhalls Jónssonar er svohljóðandi:

Bæjarstjórn Akureyrar mótmælir fyrirhuguðum breytingum á Loftbrú og lýsir yfir áhyggjum af þeim áhrifum sem þær kunna að hafa fyrir íbúa landsbyggðarinnar. Loftbrú er mikilvægt byggðarjöfnunartæki sem tryggir íbúum utan höfuðborgarsvæðisins betra aðgengi að nauðsynlegri þjónustu, atvinnu, menningu, námi og fjölskyldutengslum. Breyting frá hlutfallslegum 40% afslætti yfir í fasta krónutölu felur í sér skerðingu á stuðningi, sérstaklega þegar flugfargjöld eru há og bóka þarf flug með skömmum fyrirvara. Með því er aukinn kostnaður færður yfir á íbúa landsbyggðarinnar og jafnræði til búsetu skert. Bæjarstjórn Akureyrar skorar á stjórnvöld að endurskoða fyrirhugaðar breytingar, tryggja raunverulegt samráð við sveitarfélög og íbúa landsbyggðarinnar og standa vörð um Loftbrú sem mikilvægt tæki til byggðarjöfnunar. Það á ekki að vera dýrara að búa á landsbyggðinni vegna þess að nauðsynleg þjónusta er staðsett á höfuðborgarsvæðinu.

Bókun Sindra S. Kristjánssonar og Hönnur Dóru Markúsdóttur hljóðar svo:

Loftbrúin er eitt allra mikilvægasta tækið til að tryggja byggðajöfnuð í landinu og jafna aðgengi íbúa landsbyggðarinnar að sérhæfðri þjónustu, stjórnsýslu og menningu á höfuðborgarsvæðinu. Fyrir okkur jafnaðarfólk er það grundvallaratriði að öllum landsmönnum sé tryggt jafnt og sanngjarnt aðgengi að þessum gæðum. Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar á Akureyri lýsa yfir talsverðum áhyggjum af áformum innviðaráðherra um að hverfa frá 40% hlutfallslegum afslætti Loftbrúarinnar yfir í fasta krónutölu. Fastur krónutöluafsláttur rýrnar hratt í verðbólgu og verndar notendur ekki gegn mikilli verðlagningu á fargjöldum þegar ferðast þarf með skömmum fyrirvara, til dæmis vegna óvæntra atburða. Þar sem nú þegar hefur verið tilkynnt um aukin framlög til verkefnisins sem mæta fyrri fjárhagsvanda, er ekki lengur þörf á þessari kerfisbreytingu að okkar mati. Við hvetjum innviðaráðherra eindregið til að falla frá hugmyndum um fasta krónutölu og viðhalda núverandi fyrirkomulagi óbreyttu, nema fram komi tillögur sem raunverulega bæta og styrkja kerfið fyrir notendur þess jafnt sem ríkissjóð.