Alþingiskosningar 2024
														
Sjálfstæðisflokkur með mest fylgi í NA
											
									
		10.09.2021 kl. 17:48
		
							
				
			
			
		
											
									Sjálfstæðisflokkurinn mælist með mest fylgi í Norðausturkjördæmi, 23%, skv. nýrri könnun Rannsóknamiðstöðvar Háskólans á Akureyri, vegna alþingiskosninganna 25. september. Flokkurinn fengi þrjá menn kjörna yrði þetta niðurstaða kosninganna.
Niðurstaða könnunarinnar er sem hér segir:
- Sjálfstæðisflokkur 23,0% – 3 þingmenn
 - Framsóknarflokkur 18,2% – 2 þingmenn
 - Vinstri hreyfingin – grænt framboð 14,2% – 1 þingmaður
 - Samfylkingin 10,9% – 1 þingmaður
 - Miðflokkur 9,7% – 1 þingmaður
 - Píratar 7,9% – 1 þingmaður
 - Sósíalistaflokkur Íslands 7,1%
 - Viðreisn 4,6%
 - Flokkur fólksins 3,9%
 - Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn 0,4%
 
Um er að ræða netkönnun meðal fólks í álitsgjafahópi RHA í Norðausturkjördæmi.
1354 svöruðu könnuninni. Gögnin voru vigtuð eftir búsetu og aldri til þess að endurspegla betur lýðfræðina í síðustu kosningum. Eftir vigtun eru svörin 1268.
Nánar verður greint frá niðurstöðum könnunarinnar eftir helgi, eftir því sem Akureyri.net kemst næst.
 