Fara í efni
Skip dagsins

Borgarhólsskóli á Húsavík vann Fiðring

Lið Borgarhólsskóla á Húsavík vann Fiðring í annað skipti. Myndir: Hilmar Friðjónsson

Borgarhólsskóli á Húsavík sigraði í hæfileikakeppninni Fiðringi sem fram fór í menningarhúsinu Hofi í síðustu viku. Um er að ræða keppni fyrir nemendur í 8.-10. bekk grunnskólanna á Norðurlandi og í ár tóku 10 skólar þátt, allt frá Hvammstanga til Húsavíkur.

Varmahlíðarskóli tók nú þátt í Fiðringi í fyrsta sinn en það olli skipuleggjendum Fiðrings vonbrigðum hve fáir Akureyrarskólar voru með. „Það er reyndar umhugsunarefni af hverju bara fjórir af sjö Akureyrarskólunum taki þátt í ár þar sem þeir eru flestir mjög fjölmennir en það er einlæg von okkar sem stöndum að verkefninu að þeir taki allir þátt að ári!“ sagði í tilkynningu frá Fiðringi eftir keppnina.

Lið Brekkuskóla á Akureyri lenti í 2. sæti.

Sigurvegari í ár er Borgarhólsskóli á Húsavík með atriði Ég er ekki lygari og fjallar um það hvernig þolendum kynferðisofbeldis er oft ekki trúað. Í öðru sæti var Brekkuskóli með atriðið Saknaðarsöngur „sem fjallar um að ef við pössum okkur ekki gæti tæknin tekið yfir farið að stjórna okkur mannfólkinu. Í þriðja sæti lenti Síðuskóli með atriðið Opnum dyrnar sem varpar ljósi á erfiðleika og fordóma í garð innflytjenda og hversu sárt og erfitt það getur verið að þurfa að yfirgefa heimili sín. Sérstök verðlaun fyrir skemmtilega, vandaða eða skapandi notkun á íslensku hlaut Grunnskóli Húnaþings vestra.“

Kátt var í Hamraborg í Hofi þegar skólarnir níu stigu á svið með atriðin sín. „Kynnarnir Níels Thibaud Girerd og Hólmfríður Hafliðadóttir leikarar fóru á kostum milli atriðanna og fóru hamförum í búningskiptum. Maron Birnir tryllti lýðinn í dómarahléinu og flutti Fiðringslagið Hvar ertu nú? ásamt fleiri lögum,“ segir í tilkynningunni.

Lið Síðuskóla á Akureyri sem varð í 3. sæti i Fiðringi.

Dómnefnd átti úr vöndu að ráða „og auðvitað eru allir þáttakendur sigurvegarar eins og þau nefndu, margir að fara langt út fyrir þægindarammann sinn, mættir á stóra sviðið í Hofi að dansa leika og syngja fyrir hátt á fjórða hundrað manns. Unglingarnir skinu skært og það var frábært að sjá ástríðuna og gleðina á sviðinu og baksviðs. Framtíðin er svo sannarlega björt!“

  • SSNE og SSNV styrkja verkefnið ásamt Menningarfélagi Akureyrar.Verkefnastjórar eru María Pálsdóttir og Hera Jónsdóttir.

Tónlistarmaðurinn Maron Birnir í miðri þvögunni. Hann tryllti lýðinn í dómarahléinu að sögn og flutti Fiðringslagið Hvar ertu nú? ásamt fleiri lögum.

Stemning í „Græna herberginu“ sem svo er kallað, þótt græni liturinn sé fjarri því áberandi!

Kynnarnir Níels Thibaud Girerd og Hólmfríður Hafliðadóttir leikarar „fóru á kostum milli atriðanna og fóru hamförum í búningskiptum.“