Það eru fiskisúpur, og svo bouillabaisse ...
Sumri hallar, hausta fer ... Þráinn Lárusson er mættur til leiks á ný eftir sumarfrí og tekur upp þráðinn þar sem frá var horfið í júní við að ausa úr viskubrunni sínum í pistlaröðinni vinsælu, MATARÞRÁ-INN.
Þráinn fjallar í dag um frægustu fiskisúpu í heimi, hina frönsku bouillabaisse sem margir kannast eflaust við. Þetta stolt Marsteille er „súpa með sögu sveipaða dulúð og það er vel þess virði að ferðast til Suður-Frakklands til að njóta hennar,“ segir í mjög fróðlegum og skemmtilegum pistli.
Nýttu það sem féll til
„Fáir réttir segja jafn skýra sögu um uppruna sinn og bouillabaisse,“ segir Þráinn. „Hún varð hvorki til í eldhúsum veitingahúsa né var hún mótuð í skrifuðum uppskriftum heldur spratt hún beint upp úr lífi og starfi þeirra sem þurftu að nýta það sem til féll. Í Marseille, við eina elstu og líflegustu hafnarborg Miðjarðarhafsins, varð þessi súpa til sem í dag er talin meðal þekktustu fiskrétta Frakklands. En saga hennar er ekki saga lúxus heldur algjörlega hins gagnstæða.“
- Pistill dagsins: Bouillabaisse, frægasta fiskisúpa heims