Fara í efni
Menning

Sár stund en KA-menn geta farið stoltir í frí

Bjarni Ófeigur Valdimarsson hefur ekki getað beitt sér að fullu undanfarnar vikur en lauk tímabilinu í kvöld með 10 mörkum og fjórum stoðsendingum. Mynd: Ármann Hinrik

Handboltalið KA er komið í frí, nokkru fyrr en stefnt var að, en í ljósi aðstæðna má fullyrða að KA-menn geta haldið stoltir út í sumarið þrátt fyrir allt. Þeir töpuðu í kvöld fyrir Val á Hlíðarenda, 38:34, og Valsmenn unnu þar með einvígi liðanna í undanúrslitum Íslandsmótsins 3:0. Valur mætir annað hvort Haukum eða FH í lokaglímunni um Íslandsmeistaratitilinn en KA-strákarnir sleikja sárin og snúa sér að því að hlaða batteríin fyrir næsta vetur.

KA-menn sáu aldrei til sólar í fyrsta leiknum við Val um síðustu helgi. Þeir áttu svo mjög erfitt uppdráttar framan af öðrum leiknum á heimavelli á fimmtudag, fundu þó fyrir sigurilmi undir lokin en töpuðu, ekki síst vegna eigin klaufaskapar. Í kvöld var því að duga eða drepast og KA-liðið ætlaði greinilega að láta sverfa til stáls; gestirnir voru grimmir í byrjun og komust í 4:1 en leikar jöfnuðust fljótt og fyrri hálfleikurinn var í jafnvægi lengi vel. Heimamenn áttu betri endasprett og staðan í hálfleik var 19:16 fyrir Val.

Valsmenn gerðu þrjú fyrstu mörk seinni hálfleiksins, munurinn var þá orðinn sex mörk eftir aðeins þrjár mínútur en í stað þess að bugast skiptu KA-strákarnir um gír og svöruðu með fjórum mörkum í röð, á þremur og hálfri mínútu! Valsmenn voru þó jafnan nokkrum skrefum á undan og munurinn var sex mörk þegar seinni hálfleikurinn var rétt liðlega hálfnaður. En það er þetta með KA-strákana og að neita að gefast upp; þegar 10 mínútur voru eftir var munurinn kominn niður í tvö mörk, 30:28, en þá gerðu Valsmenn þrjú mörk í röð á meðan þeir voru einum færri, auk þess sem Björgvin Páll varði vítaskot og möguleikar KA runnu út í sandinn. 

Það er gömul saga og ný að við ákveðnum spurningum fást aldrei svör; til dæmis má velta því fyrir sér hvað KA-liðið hefði gert með alla sína menn klára í slaginn, en sú var aldeilis ekki staðan. Listinn er í raun ótrúlegur:

  • Einar Rafn Eiðsson sem var ekkert með fyrr en um miðjan vetur hefur spilað mun meira undanfarið en æskilegt er, vegna meiðsla annarra, en hann var vart leikhæfur í kvöld. Lét sig hafa það fyrri hluta leiksins, gerði þá eitt mark með skoti utan af velli, en kom inn á til að taka víti í seinni hálfleiknum og skoraði úr alls 5 vítaskotum af 7 í leiknum
  • Bjarni Ófeigur Valdimarsson, yfirburðamaður hjá KA í vetur, meiddist fyrr á árinu og hefur ekki getað beitt sér að fullu – en lauk þó tímabilinu í kvöld með því að gera 10 mörk og átti að auki fjórar stoðsendingar.
  • Örvhenti hornamaðurinn, Giorgi Arvelodi Dikhaminjia, meiddist í landsleik með Georgíu fyrir nokkrum vikum og var ekkert með í úrslitakeppninni.
  • Norðmaðurinn Morten Boe Linder, örvhent skytta eða hornamaður, sem skoraði næst mest fyrir KA í vetur, fór úr axlarlið síðla vetrar og náði sér aldrei almennilega á strik. Lék þó töluvert en lítið sem ekkert í síðasta leik og var ekkert í kvöld. 
  • Daði Jónsson fyrirliði KA, grjótharður varnarmaður og einn lykilmanna á þeim vettvangi, sleit hásin á æfingu um miðjan mars.

Vart er hægt að ætlast til mikils af liði sem verður fyrir skakkaföllum eins og þessum. Þrátt fyrir tap fyrir Val skal því endurtekið að KA-menn geta haldið stoltir í frí; auðvitað er sárt að tapa en Valsmenn eru með hörkulið og mikla breidd en þjálfari KA gat ekki dreift álaginu á jafn marga leikmenn og hann hefði gert alla jafna. Það tekur sinn toll.

Mörk KA: Bjarni Ófeigur Valdimarsson 10, Einar Rafn Eiðsson 6 (þar af 5 víti), Dagur Gautason 4, Arnór Ísak Haddsson 3, Einar Birgir Stefánsson 3, Logi Gautason 3, Patrekur Stefánsson 3, Jens Bragi Bergþórsson 1, Magnús Dagur Jónatansson 1.

Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 11, þar af 1 víti (22,4%), Bruno Bernat 0.

Mörk Vals: Andri Finnsson 8, Þorgils Jón Svölu Baldursson 7, Arnór Snær Óskarsson 6 (þar af 3 víti), Gunnar Róbertsson 4, Bjarni í Selvindi 3, Björgvin Páll Gústavsson 2, Dagur Leó Fannarsson 2, Daníel Montoro 2, Magnús Óli Magnússon 2, Allan Norðberg 1, Þorvaldur Örn Þorvaldsson 1.

Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 14, þar af 2 víti (31%)