Menning
Ekkert skorað og allir vonsviknir heim
27.07.2026 kl. 22:00
KA-maðurinn Hallgrímur Mar Steingrímsson og Þórsarinn Gyrðnir Hrafn Guðbrandsson eigast við á nýjum Greifavelli KA í kvöld. Mynd: Skapti Hallgrímsson
KA og Þór gerðu markalaust jafntefli í kvöld í Bestu deildinni, efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu, í fyrsta leiknum á nýjum gervigrasvelli KA. Bæði lið þurftu nauðsynlega á sigri og þar með þremur stigum að halda í harðri botnbaráttu þannig að allir fóru að líkindum vonsviknir heim.
Þór er áfram í 12. og neðsta sæti deildarinnar með 12 stig, FH er með 13 og KA hefur nú 15 stig eins og Stjarnan.
Nánar á eftir