Vistþjónusta skóga er mikilvæg fyrir alla
Þegar við fórnum hlutum hennar bitnar það að endingu á okkur sjálfum.
Sigurður Arnarson beinir sjónum að vistþjónustu skóga í nýjum pistli í röðinni Tré vikunnar frá Skógræktarfélagi Eyfirðinga. Hann nefnir fjölmargt sem telst hluti af vistkerfisþjónustu skógarins. „Við nýtum öll ýmiss konar þjónustu sem vistkerfi náttúrunnar veita,“ skrifar hann.
Sigurður segir mikilvægt að skerða ekki lífsgæði fjöldans með því að fórna vistþjónustu fyrir stundarhagsmuni fárra. „Þjónustan er ómissandi fyrir okkur öll enda byggist afkoma mannkyns á náttúruauðlindum. Rétt er að halda því til haga að skógurinn sjálfur hefur engan sérstakan áhuga á því hvort eða hvernig hann getur þjónað okkur. Það verður því að teljast ákaflega mannhverf hugsun að tala um vistkerfisþjónustu. En ef til vill hjálpar þetta hugtak okkur að skilja betur hversu mikilvæg náttúran er út frá okkar sjónarhóli og fyrir okkur. Þegar við fórnum hlutum hennar bitnar það að endingu á okkur sjálfum.“
Meira hér: Vistkerfisþjónusta