Fara í efni
Mannlíf

Topplið Bestu deildar karla sækir Þór heim

Ágúst Eðvald Hlynsson fagnar marki gegn KR á dögunum. Hann skoraði eftir rúma mínútu í sögulegum leik sem lauk með 3:3 jafntefli. Mynd: Ármann Hinrik.

Þór tekur á móti liði Víkings úr Reykjavík í 15. umferð Bestu deildar karla í dag.

Staða Þórs í 12. sæti Bestu deildar karla í knattspyrnu batnaði ekki í 14. umferð mótsins því á meðan Þór mátti þola 6-1 tap fyrir Fram í Úlfarsárdalnum unnu tvö næstu lið fyrir ofan í töflunni, FH og KA, bæði sína leiki. Þór er núna með átta stig, en fyrir ofan eru FH með 11 stig og KA með 13. Þór tekur á móti langefstaliði deildarinnar, Íslandsmeisturum Víkings, í dag. Víkingur er með 40 stig á toppi deildarinnar eftir 14 leiki, átta stigum á undan KR.

  • Besta deild karla í knattspyrnu, 15. umferð
    Þórsvöllur (VÍS-völlurinn, gervigrasvöllur á Ásnum) kl. 16
    Þór - Víkingur

Fyrri leik liðanna sem fram fór á Víkingsvelli í byrjun maí lauk með 6-0 sigri Víkings.

Upphitun í Hamri

Þórsarar tilkynntu í gær að upphitun stuðningsmanna fyrir leikinn hæfist kl. 14:30 í Hamri. „Góða veðrið verður á sínum stað og hvetjum við alla Þórsara til að fjölmenna á völlinn og styðja strákana okkar til sigurs gegn Íslandsmeisturunum,“ sagði á vef félagsins.

Þar segir einnig: „Miðasala á næsta leik liðsins, nágrannaslaginn gegn KA á útivelli hefst einnig klukkan 14:30. Aðeins eru 400 miðar í boði, þannig að það gildir einfaldlega: Fyrstur kemur, fyrstur fær! Miðarnir sem Þór fær eru í stæði fyrir aftan annað markið.“