Fara í efni
Mannlíf

Stúdentagarðar rísa fyrir 4,5 milljarða

Mynd: FÉSTA

Samið hefur verið við fyrirtækið  K16 ehf. í Reykjavík um byggingu stúdentagarða fyrir FÉSTA (Félagsstofnun stúdenta Akureyri) við Norðurslóð 3, 5 og 7, spölkorn neðan Háskólans á Akureyri.

Fimm tilboð bárust, K16 átti það lægsta sem hljóðaði upp á tæpa 4,5 milljarða – 94,8% af kostnaðaráætlun. BB-Byggingar á Akureyri áttu næst lægsta tilboð, rúma 4,6 milljarða sem var 98,1% af kostnaðaráætlun.

Strax verður hafist handa við verkefnið og því á að vera lokið sumarið 2029. Byggingarnar verða alls 6700 fermetrar, þar verða alls 62 litlar íbúðir og 64 einstaklingsherbergi ásamt stoðrýmum og aðstöðu starfsfólks.

Eftirfarandi tilboð bárust:

  • K16 ehf 4.499.044.168 – 94.8%
  • BB-Byggingar 4.656.013.655 – 98.1%
  • Eykt 4.764.042.787 – 100.4%
  • Ístak 5.045.774.814 – 106.3%
  • GG-Verk 5.445.686.503 – 114.7%

Kostnaðaráætlun var 4.747.396.319

Inni í tilboðum var vinna vegna jarðvinnu og aðstöðu, burðarvirki, lagnir, raflagnir, frágangur innanhúss, utanhúss og á lóð og aukaverk.
Fyrir utan tilboð er kaup og uppsetning á lyftum, aðgangsstýringar- og öryggiskerfum, netbúnaður og lausabúnaður.
 
Haldin var samkeppni um hönnun stúdentagarðanna, 11 tillögur bárust í samkeppnina og snemma árs 2024 var tilkynnt að arkitektastofan Nordic Office of Architecture hlyti 1. verðlaun. Hér er frétt akureyri.net 23. febrúar 2024: