Mannlíf
Stefán Árnason ráðinn til starfa í Kúveit
13.07.2026 kl. 10:40
Stefán Árnason galvaskur nýjum vinnustað í Kúveit. Mynd af Handkastinu.
Akureyringurinn Stefán Árnason hefur verið ráðinn til starfa hjá Handknattleikssambandi Kúveit. Að sögn vefmiðilsins Handkastsins var Stefán ráðinn til eins árs til að byrja með og starfið er fjölbreytt; hann verður m.a. aðalþjálfari landsliðs 16 ára drengja og yngri, kemur að tækniþjálfun og þróun leikmanna og vinnur náið með Aroni Kristjánssyni sem þjálfar karlalandslið Kúveit.
Stefán þjálfaði yngri flokka KA á sínum tíma og meistaraflokk félagsins frá 2017 ti 2020. Hann þjálfaði einnig yngri flokka Selfoss og meistaraflokk félagsins, og síðasta keppnistímabil var hann þjálfari Aftureldingar í Mosfellsbæ.