Markaregn en KA og Þór töpuðu bæði
Akureyrarfélögin eru enn í tveimur neðstu sætum Bestu deildarinnar, efstu deildar Íslandsmótsins í knattspyrnu, þegar 20 leikjum er lokið af 22 í hefðbundnu deildarkeppninni. Síðan tekur við fimm leikja„ framlenging“ þar sem neðstu sex liðin berjast áfram um að halda sér í deildinni en tvö neðstu falla.
Mörkum rigndi í leikjum beggja liðanna í dag. KA tók á móti KR í glampandi sól þar sem gestirnir fögnuðu 5:3 sigri en Þór sótti Stjörnumenn heim í Garðabæ. Leikið var innandyra, í Miðgarði, og heimamenn unnu 4:2.
Stjarnan komst í 4:0 áður en Þórsarar löguðu stöðuna og á Greifavellinum var fjörið mikið, eins og jafnan þar sem KR-ingar eru staddir. KR var komið í 2:0 þegar 10 mínútur voru búnar en að næstu 10 liðnum hafði KA jafnað! Gestirnir bættu við síðan tveimur mörkum við fyrir hlé, staðan 4:2 í hálfleik, þeir gerðu fimmta markið snemma í seinni hálfleik en Kári Gautason minnkaði muninn fyrir KA með síðustu spyrnu leiksins. Það var fyrsta mark bakvarðarins knáa fyrir KA.
Meira síðar