Mannlíf
Krossband slitið og Rodri frá út sumarið
27.05.2026 kl. 22:30
Rodri í baráttu um boltann við Þórsarann Ágúst Eðvald Hlynsson í leiknum í byrjun mánaðarins. Mynd: Ármann Hinrik
Spænski miðjumaðurinn Rodri í knattspyrnuliði KA sleit krossband í leiknum gegn Þór í byrjun mánaðarins og verður ekki meira með í sumar. Sæbjörn Steinke greindi frá tíðindunum á X í gær og síðan á fótbolta.net í dag – sjá hér.
„Rodri meiddist í fyrri hálfleik leiksins en þurfti að bíða talsvert eftir því að koma úr myndatöku en niðurstaða úr henni kom á dögunum og þá var ljóst að krossband í hné væri slitið. Spænski miðjumaðurinn verður ekki meira með á tímabilinu og er á leið í aðgerð,“ segir Sæbjörn. Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, staðfesti tíðindin
Rodri, sem hefur verið lykilmaður hjá KA undanfarin ár, er orðinn 37 ára og samningur hans við félagið rennur út í lok þessarar leiktíðar.