Fara í efni
Mannlíf

Fyrsta stig Þórsara í tvo mánuði

Einar Freyr Halldórsson tryggði Þórsurum stig gegn FH í Hafnarfirði í dag með marki úr vítaspyrnu. Mynd: Ármann Hinrik

Þórsarar gerðu 1:1 jafntefli gegn FH á Kaplakrikavelli í viðureign liðanna í 11. umferð efstu deildar karla í knattspyrnu í kvöld. Þetta er fyrsta stig Þórsara í deildinni síðan 23. apríl, þegar sigur vannst á Fram í þriðju umferð mótsins, en síðan þá höfðu sjö leikir tapast í röð. Þór er ennþá í næstneðsta sæti deildarinnar, stigi á undan FH, þegar deildarkeppnin er hálfnuð.

Leikurinn var gríðarlega þýðingarmikill fyrir bæði liðin, sem hafa átt erfitt uppdráttar í sumar. Hann bar þess líka merki því mikil barátta einkenndi leikinn og marktækifæri voru af skornum skammti. FH byrjaði mun betur og var meira með boltann og fyrsta færi þeirra endaði með marki. Úlfur Ágúst Björnsson var inni í vítateig þegar liðsfélagi hans átti misheppnað skot utan teigs og Úlfur Ágúst rak fótinn í boltann sem hafnaði í stönginni. Hann var fljótastur að átta sig, var fyrstur að boltanum og náði að koma  honum inn fyrir marklínuna. Hálfgert heppnismark og að öðru leyti náðu FH-ingar ekki að skapa sér veruleg tækifæri, nema hvað Aron Birkir Stefánsson í marki Þórs varði vel frá Úlfi Ágústi á 43. mínútu. 

Eftir að hafa verið óöruggir og hikandi framan af leik sóttu Þórsarar smám saman í sig veðrið og í síðari hálfleik var allt annað að sjá til þeirra. Þeir létu FH-inga finna meira fyrir sér og voru hugrakkari með boltann en áður. Það var því fyllilega sanngjarnt að Þór skyldi jafna leikinn á 75. mínútu. Brotið var á Ásbirni Líndal Arnarssyni í teignum og Einar Freyr Halldórsson skoraði af miklu öryggi úr vítaspyrnunni. Hvorugt liðið náði að skapa sér líkleg færi það sem eftir lifði leiks til að hirða öll þrjú stigin.

Sanngjart jafntefli niðurstaðan og jákvætt fyrir Þórsara að binda endi á langa taphrinu. sérstaklega þar sem liðið er ennþá laskað vegna fjarveru margra lykilmanna. Næsti leikur liðsins er heimaleikur gegn Val næstkomandi sunnudag en Þórsarar báru einmitt sigurorð af Valsmönnum sunnan heiða í fyrstu umferð mótsins.

Leikskýrslan á vef KSÍ

Staðan í deildinni