Fara í efni
Mannlíf

Fengu sprengjubrot í veiðarfærin

Sprengjubrotið komið um borð. Mynd: Áhöfn Bjargar EA 7.
Björg EA 7, einn af ísfisktogurum Samherja, fékk í gær sprengju úr seinni heimsstyrjöldinni í veiðarfærin þegar skipið var við veiðar á Rifsbanka, norður af Melrakkasléttu. Haft var samband við Landhelgisgæsluna sem staðfesti að brotið væri hluti af MARK XVII sprengju. Greint er frá þessu í frétt á vef Samherja.
 
Í frétt Samherja er haft eftir Árna Rúnari Jóhannessyni skipstjóra að Hreinn Birkisson stýrimaður hafi orðið var við að torkennilegur hlutur væri kominn í trollið og því ákveðið að hífa inn veiðarfærin. Fljótlega hafi menn áttað sig á að þarna væri hluti úr sprengju á ferðinni og strax haft samband við Landhelgisgæsluna eins og gera beri í svona tilvikum. Sérfræðingar þar úrskurðuðu strax að um væri að ræða hluta af MARK XVIII sprengju sem breski herinn beitti í síðari heimsstyrjöldinni.

Logi Þórðarson skoðar sprengjubrotið. Mynd: Áhöfn Bjargar EA 7.

Frétt Samherja: 

Hluti úr breskri sprengju sem notuð var í seinni heimsstyrjöldinni kom í veiðarfæri ísfisktogarans Bjargar EA 7 í gær er skipið var við veiðar á Rifsbanka, norður af Melrakkasléttu. Haft var samband við Landhelgisgæsluna sem staðfesti að brotið væri hluti af MARK XVII sprengju.

Úr síðari heimsstyrjöldinni

Árni Rúnar Jóhannesson skipstjóri segir að Hreinn Birkisson stýrimaður hafi orðið var við að torkennilegur hlutur væri kominn í trollið og því ákveðið að hífa inn veiðarfærin.

„Við áttuðum okkur fljótlega á því að þetta væri hluti úr sprengju og settum okkur því í samband við Landhelgisgæsluna, sem ber að gera við slíkar aðstæður. Sérfræðingar þar úrskurðuðu strax að um væri að ræða hluta af MARK XVIII sprengju sem breski herinn beitti í síðari heimsstyrjöldinni. Við sendum Landhelgisgæslunni myndir af sprengjubrotinu og nákvæma staðsetningu á því hvar það kom í veiðarfærin,“ segir Árni Rúnar.

Engin hætta á ferðum

„Það er annars ekkert grín að fá þessar gömlu sprengjur í veiðarfærin og um borð, lykilatriðið er hreyfa alls ekkert við þeim og allra síst að skila þeim aftur í hafið. Sem betur fer var þetta einungis hluti úr sprengju og engin hætta á ferðum. Við þurfum með öðrum orðum ekki að stíma í land, sem þarf að gera ef um er að ræða ósprungnar sprengjur.“

Vinsæl togslóð

Annars voru sérfræðingarnir hjá Landhelgisgæslunni að grínast með það að áhöfnin ætti kannski að splæsa saman í nokkra lottómiða, þar sem við hittum á þetta sprengjubrot á vinsælli togslóð. En svona í alvöru talað, þetta var góðu heilli aðeins brot úr sprengju og engin hætta á ferðum. Engu að síður er þetta mjög óæskilegt og getur hæglega skemmt veiðarfærin, “ segir Árni Rúnar Jóhannesson skipstjóri á Björgu EA 7.